136. löggjafarþing — 127. fundur,  6. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[23:27]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég get ekki látið því ómótmælt sem hér var haldið fram, að hér hefðu ekki aðrir hv. þingmenn en þingmenn Sjálfstæðisflokks tekið til máls. Ég vil upplýsa þingheim um það að nú mun kannski vera búið að tala hér í tæpar 40 stundir eða eitthvað svoleiðis um þetta mál og í 1. umr. um málið voru fluttar tíu ræður af öðrum en hv. þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. (Gripið fram í.) Við 2. umr. sem við erum nú í miðri hafa sjö hv. þingmenn aðrir en þingmenn Sjálfstæðisflokksins tekið til máls, þar af framsögumaður meiri hlutans hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir, í tvígang, Ellert B. Schram, Atli Gíslason, Guðjón Arnar Kristjánsson, Lúðvík Bergvinsson og Helga Sigrún Harðardóttir en þá (Gripið fram í.) var svo komið sögu að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins, 26 að tölu, röðuðu sér á mælendaskrána og fylltu hana. (Forseti hringir.) Þannig er staðan enn.