stjórnarskipunarlög.
Virðulegi forseti. Í því stjórnarskrárfrumvarpi sem hér liggur fyrir er kveðið á um að náttúruauðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti skuli vera í þjóðareign. (SKK: Þær eru það hvort eð er.) Einkenni þess að náttúruauðlind fellur undir þjóðareign er hins vegar það að hún verður ekki látin varanlega af hendi. Það er einkenni þessa eignarréttarforms. Að því leyti til eru ríkisjarðir ekki þjóðareign nema löggjafinn kveði sérstaklega á um að svo sé því að eins og ákvæðið er sett upp er um það að ræða að náttúruauðlindir séu í þjóðareign, að teknu tilliti til einkaréttar sem er til staðar, en síðan er löggjafanum færð sú heimild að færa fleiri réttindi undir þjóðareignarhugtakið og það er einmitt einkennið á þjóðareignarhugtaki að viðkomandi réttindi verði ekki látin varanlega af hendi. Í þessu tilviki lít ég því svo á að ríkisjarðir séu ekki í þjóðareign nema löggjafinn skilgreini ríkisjarðir sérstaklega sem þjóðareign.