136. löggjafarþing — 127. fundur,  7. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[00:32]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Þjóðlendur eru í ríkiseign og sem slíkar eru þær undirorpnar einkaeignarrétti. Ríkið hefur verið gagnrýnt fyrir það að ganga býsna hart fram í kröfugerð sinni gagnvart bændum til að sölsa undir sig ýmis landsvæði. Maður hlýtur þá að velta fyrir sér hvort þær falli undir þennan skilning hv. þingmanns. Eru þjóðlendurnar náttúruauðlindir í þjóðareign sem ekki má láta varanlega af hendi eða eru þjóðlendurnar ríkiseign í þeirri merkingu sem við töluðum um áðan um ríkisjarðir? Ef svo er ekki, er þá útilokað um aldur og ævi, verði þetta frumvarp að lögum, að einhver hluti af þessum þjóðlendum, þar á meðal ýmis landsvæði sem þykja ná fulllangt inn á þau landsvæði sem bændur töldu sig hafa eignarrétt yfir en töpuðu málum gegn ríkinu fyrir Hæstarétti, muni ekki komast aftur í eigu bænda eða landeigenda? Ég velti því fyrir mér og það væri ágætt ef hæstv. fjármálaráðherra, 2. flutningsmaður þessa frumvarps, kæmi hér upp í ræðustólinn og útskýrði það fyrir mér hvort svo væri. Ég held að það sé mikilvægt fyrir bændur landsins og landeigendur að fá upplýsingar um hvort í þessu frumvarpi felist í rauninni það að ríkið sé að geirnegla eignarrétt sinn á þeim landsvæðum sem hér hafa risið miklar deilur um.