stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Hér kom fram mjög merkileg sáttatillaga frá formanni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssyni, um að málið yrði tekið inn í nefnd til þess að þar væri hægt að leita sátta og miðað við að formaður sérnefndar um stjórnarskrármál gefur sig út fyrir það í umræðunni að vera friðarins maður þá hlýtur hann að taka afstöðu til þessa góða tilboðs. Ég legg því til að hæstv. forseti fresti fundi á meðan ákvörðun er tekin um hvort á þessa tillögu verði fallist.
Verði það ekki gert þá mundi ég nú vilja að fá upplýsingar um það hversu lengi forseti hyggst halda þessum fundi áfram. Þannig vill til að ég á að mæta á fund í utanríkismálanefnd klukkan átta í fyrramálið til þess að ræða skýrslu fjárlaganefndar breska þingsins og mundi helst vilja vera vel áttaður og svona sæmilega sofinn á þeim fundi vegna þess að það mál varðar (Forseti hringir.) mikla þjóðarhagsmuni. (Forseti hringir.) Fyrir utan það að ég er fjölskyldumaður og þarf að gera einhverjar ráðstafanir. Þannig að mér þætti nú vænt um það (Forseti hringir.) ef hæstv. forseti gæti veitt mér þessar upplýsingar, í fullri vinsemd.