stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Hv. þingmaður sagði að stjórnarskráin sé grundvallarlög íslenska ríkisins. Til hvers er ríkið eiginlega? Ég lít þannig á að stjórnarskrá eigi að tryggja mannréttindi númer eitt, tvö og þrjú, að vernda einstakling fyrir öðrum einstaklingum, gera kröfur fyrir hans hönd á hendur öðrum einstaklingum, eins og t.d. um framfærsluskyldu foreldra við börn sín, lítið barn á kröfu á foreldra sína um framfærslu. Til að sjá um að þessi mannréttindi séu haldin stofnum við ríki og við skiptum ríkinu í þrjár deildir til að vernda einstaklinginn fyrir ofurvaldi ríkisins. Menn þurfa að átta sig á því til hvers stjórnarskrá er og til hvers ríkið er en ekki að segja að stjórnarskrá sé grundvöllur íslenska ríkisins. Íslenska ríkið er einfaldlega tæki til að vernda mannréttindi.
Varðandi það að gull sé auðlind þá langar mig til að hv. þingmaður ímyndi sér að hann sé uppi á Sprengisandi fótbrotinn með 100 kg af gulli, það er miður vetur, og sjá hvað hann gerir við allt gullið í þeirri stöðu.