dagskrártillaga.
Herra forseti. Ég hafna ómálefnalegum ummælum hv. þm. Árna Páls Árnasonar um leikhús fáránleikans. Ég fagna hins vegar því sem ég gat lesið út úr orðum hans, að hann mundi beita sér fyrir því að greiðsluaðlögunin kæmi á dagskrá á morgun. Ég vona að við getum náð um það sátt fyrst ekki náðist sátt um að gera það í dag.
Í öðru lagi vildi ég nefna að það er auðvitað mjög sérstakt að þegar allir flokkar standa að málum með þessum hætti sé ekki greitt fyrir því í störfum þingsins. Og ég verð að segja að það lýsir afskaplega litlum samkomulagsvilja og í rauninni mikilli óbilgirni af hálfu ríkisstjórnarinnar og meirihlutaflokkanna hér á þingi að ætla að keyra þetta stjórnarskrármál í gegn hvað sem tautar og raular, hvað sem öllu öðru líður, hvað sem öllum öðrum málum líður sem þó hafa miklu meiri þýðingu fyrir heimilin í landinu.
Ég verð að vitna til þess, herra forseti, að út úr ummælum hæstvirtra ráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar, á blaðamannafundi í dag les ég að þau útiloki (Forseti hringir.) að nokkru verði hnikað til í störfum þingsins (Forseti hringir.) fyrr en þetta gælumál þeirra, stjórnarskrárbreytingarnar, er komið í gegn.