136. löggjafarþing — 128. fundur,  7. apr. 2009.

skýrsla fjármálanefndar breska þingsins um áhrif aðgerða bresku stjórnarinnar á fall íslensku bankanna.

[15:14]
Horfa

Kristrún Heimisdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Úr fáránleikanum í veruleikann, það mál sem við nú ræðum á hinu háa Alþingi er ekki venjulegt flokkspólitískt kosningamál heldur mál sem varðar þjóðarhagsmuni. Það er mjög mikilvægt að ræða það hér, á Alþingi, vegna þess að Alþingi í heild ætti að móta sér sameiginlega afstöðu til þess og láta þá afstöðu mjög skýrt í ljós og gera það mjög víða. Þetta mál er einstakt vegna þess að löggjafarþing annars ríkis hefur kosið að gera rannsókn og gefa út sérstaka skýrslu um íslensk málefni. Við sem hér erum í þessum sal, og Alþingi raunar sem stofnun, ættum að votta því virðingu hvernig þessi rannsókn er gerð. Við ættum líka að taka þau vinnubrögð okkur til fyrirmyndar.

Málið er líka í eðli sínu án fordæmis og alvarlegra en jafnvel við hér á Íslandi höfum áttað okkur á og viðurkennt til þessa. Fjármálanefnd breska þingsins segir nefnilega beinum orðum að ríkisstjórn Bretlands hafi í október sl. gerst virkur gerandi á markaði, og það fjármálamarkaði sem er í eðli sínu alþjóðlegur, að það tilefni sem breskir fjármálaráðherrann gaf upp fyrir þessari gjörð sé staðleysa og að breska ríkisstjórnin hafi með beitingu hryðjuverkalaga skaðað verulega viðleitni íslenskra stjórnvalda til að halda fjármálastarfsemi gangandi í íslensku samfélagi.

Hv. alþingismenn. Þessi niðurstaða rannsóknar breska þingsins er í raun og veru skýr lýsing á beinni árás ríkisstjórnar Bretlands á grunnstoðir íslensks samfélags. Orðin tala einfaldlega sínu máli, þetta er sett fram á skýran hátt og alveg sama hvar í liði fólk kann að standa og hvers lenskt fólk kann að vera er staðreyndin einfaldlega sú að þetta er lýsing á árás ríkisstjórnar eins ríkis á annað ríki, innviði þess og öryggi almennings og samfélagsins.

Samt heyra ekki undir þessa rannsókn nefndarinnar yfirlýsingar forsætisráðherra Bretlands af sömu staðleysurununnar og yfirlýsingar fjármálaráðherra sem hann kaus að láta falla frammi fyrir milljónum sjónvarpsáhorfenda og leiddu ómældan skaða yfir orðspor Íslands og stöðu á alþjóðavettvangi.

Hins vegar án þess að fjalla sérstaklega um ummæli forsætisráðherrans átelur breska fjármálanefndin beitingu hryðjuverkalaga sem slíkra og segir líka beinum orðum að beiting slíkra laga feli óhjákvæmilega í sér að smánarblettur sé markaður á þá sem fyrir verða. Þetta vitum við auðvitað öll, í þessu tilviki voru þetta Íslendingar og allt sem íslenskt er, atvinnustarfsemi, fyrirtæki og jafnvel þeir sem höfðu átt í atvinnurekstri og góðum viðskiptum við Bretland áratugum saman, eitt helst viðskiptaland Íslands.

Þessi skýrsla bresku þingnefndarinnar er góðar fréttir fyrir Ísland á alþjóðavettvangi, fyrir orðspor Íslands og samningsstöðu í fjármálum. Það á að byggja á henni sóknarstefnu fyrir Ísland á alþjóðavettvangi og því spyr ég nú hæstv. fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar hvernig sú sóknarstefna hafi verið útfærð og hvernig hana eigi að útfæra á næstunni. Íslendingar hafa nú unnið móralskan sigur, það er ekki allur sigur unninn, þetta hefur ekki réttaráhrif sem samstundis aflétti frystingu eigna eða hryðjuverkalögum en þetta er móralskur sigur, og á mórölskum sigrum þurfa Íslendingar núna að halda.

Hér heima hafa nefnilega ýmsir verið uppteknir við að dylgja um ástæður inngrips breskra stjórnvalda og hefur verið sorglegt að horfa upp á fyrrverandi forsætisráðherra, fyrrverandi seðlabankastjóra, ganga þar fremstan í flokki. Ásökunum hefur rignt jafnt yfir réttláta sem rangláta hér í okkar eigin samfélagi og þannig höfum við sjálf á stundum brotið niður eigin málstað þegar síst skyldi, núna þegar orðspor landsins og allrar viðskiptastarfsemi sem íslensk er, orðspor Íslands sem ríkis og staða Íslands á alþjóðavettvangi þarf mest á sjálfstrausti og sigurvissu að halda — og nýtum nú þennan móralska sigur til þess.