skýrsla fjármálanefndar breska þingsins um áhrif aðgerða bresku stjórnarinnar á fall íslensku bankanna.
Virðulegi forseti. Aðalatriðið í þessu máli er að við þurfum að ná samningum við bresk stjórnvöld um skuldir okkar vegna Icesave-reikninganna. Þessi skýrsla breytir því ekki að það er eftir sem áður þörf á því að ljúka málunum með samkomulagi. Ég tek eftir því að þeir sem á fyrri stigum málsins hafa látið frá sér fara þau ummæli að við ættum ekki að borga heldur berjast til þrautar og neita að borga, eru hættir að tala þannig. Það er vegna þess að menn hafa gert sér grein fyrir því að við erum ekki í þeirri stöðu að slíkt sé raunhæfur valkostur. Við mundum skaða íslenskt þjóðfélag meira en unnt er að gera sér grein fyrir ef við færum í þá vegferð.
Hitt er rétt sem fram hefur komið að skýrslan gefur okkur betra færi en áður á því að ná ásættanlegum samningum og vonir standa nú til þess að þeir samningar verði þannig að íslenskur ríkissjóður þurfi ekki að greiða vegna málsins. Það væri mikið fagnaðarefni ef svo tækist til.
Ég get ekki stillt mig um að nefna að þegar menn gerðu samninginn um Evrópska efnahagssvæðið var honum lýst þannig að við hefðum fengið allt fyrir ekkert og var mikil sigurför gengin til þess að undirstrika það. Icesave-niðurstaðan er í raun og veru hið gagnstæða, hún er afleiðing af EES-samningum þar sem við urðum að borga allt og fengum ekkert. Vonandi tekst að breyta því í kjölfar þessarar skýrslu, en það er hollt að muna að þeir samningar sem við undirgöngumst eru allir með sínum annmörkum. Menn eiga ekki að halda öðru fram og ganga hægt um gleðinnar dyr.