136. löggjafarþing — 129. fundur,  7. apr. 2009.

almennar stjórnmálaumræður.

[20:57]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Eldhúsdagur er runninn upp við harla óvenjulegar aðstæður. Venjulega er hann haldinn þegar þinglok hafa verið ákveðin. Hann hefur það táknræna hlutverk að þingmenn geri hreint hjá sér, fari yfir veturinn og klári þau verk sem ólokið er.

Nú eru aðstæður aðrar, þinglok eru óviss og enn er ágreiningur um helgasta plagg íslenskrar stjórnarskipunar, sjálfa stjórnarskrána. Ég óska þess að við þingmenn berum gæfu til að ná niðurstöðu sem allir geta sætt sig við í því mikilvæga máli. Það má ekki gerast að stjórnarskránni verði breytt í ósætti í fyrsta sinn í 50 ár.

Veturinn hefur verið okkur öllum erfiður. Við höfðum vanist því hér að allt gengi vel, að Ísland væri best í heimi til að búa í, að það væri gott að vera Íslendingur í útlöndum og að frelsi væri sjálfsagt. En eftir harkalegt áfall lærðum við að frelsið er ekki sjálfsagt. Við þurfum svo sannarlega að standa vörð um það og ég vil berjast fyrir því. Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er sannarlega stórt. En, kæru Íslendingar, það er ekki óvinnandi. Ég segi það hér að við munum klára þetta mál og við munum klára það saman. Við munum spyrna frá botninum og byggja betra Ísland.

Við sjálfstæðismenn göngum hreint til verks í komandi kosningabaráttu. Við höfum farið í heiðarlegt uppgjör við fortíðina til að geta dregið lærdóm af því sem úrskeiðis fór. Við höfum svarað kalli samfélagsins um endurnýjun, bæði í forustu flokksins sem og á framboðslistum um allt land. Þúsundir sjálfstæðismanna tóku þátt í prófkjörum flokksins í öllum kjördæmum og það var grasrótin sjálf sem raðaði á listana. Við erum tilbúin í verkið og ég segi það aftur: Við munum klára þetta mál.

Minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna tók við völdum þann 1. febrúar sl. Henni var ætlaður skammur tími, 80 dagar, og forustumenn hennar sögðust ætla að slá skjaldborg um heimilin og fyrirtækin í landinu svo notuð séu þeirra eigin orð. Nú eru 66 dagar liðnir. Hér var lesinn upp áðan mikill og langur listi af aðgerðum sem ríkisstjórnin hefur sett í gang, ýmist að eigin frumkvæði eða að frumkvæði síðustu ríkisstjórnar. Þessi listi, herra forseti, er allra góðra gjalda verður en það sem er mikilvægara og skiptir heimilin og fyrirtækin í landinu miklu meira máli er árangurinn af þessum aðgerðum, afleiðing verka minnihlutastjórnarinnar.

Fyrir 66 dögum voru 12.407 landsmenn án atvinnu. Í lok mars voru þeir því miður orðnir 17.900. Eins og þið kannski munið ætlaði þessi ríkisstjórn að skapa 6.000 ný störf. Á þessum 66 dögum hafa um 6.000 einstaklingar bæst í hóp atvinnulausra. Á þessum 66 dögum hafa stýrivextir Seðlabanka Íslands einungis lækkað um 1 prósentustig. Það sem er alvarlegra fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu er að vaxtalækkunin tafðist beinlínis vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Fyrir 66 dögum stóð gengisvísitala krónunnar í 192 stigum. Í dag veiktist krónan um tæp 4% og var vísitalan í kringum 220 stig við lok markaða. Þetta gerist þrátt fyrir að meiri hluti Alþingis hafi nýverið samþykkt lög til að herða á gjaldeyrishöftunum.

Ég ætla því að leyfa mér að gagnrýna aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna þess að þær skila ekki þeim árangri sem við verðum að gera kröfu til. Aðgerðalistinn einn og sér gerir ekki mikið gagn, aðgerðir sem ekki skila árangri. Aðgerðir sem festa Ísland og Íslendinga í höftum og ríkisvæðingu koma okkur ekki upp úr þeim hjólförum sem ríkisstjórnin virðist vera föst í. Ég kalla enn fremur eftir frekari upplýsingum. Sett hefur verið fram fyrrnefnd áætlun um sköpun 6.000 starfa. Þar af eru 2.000 í orkufrekum iðnaði. Þetta er merkingarlaust hjal á meðan þessi sama ríkisstjórn vinnur beinlínis gegn uppbyggingu í orkufrekum iðnaði. Það merkilega er að áætlun um uppbyggingu starfanna er frá sömu ríkisstjórn og er innbyrðis ósammála um frumvarp hæstv. iðnaðarráðherra um fjárfestingarsamninginn í Helguvík.

Mig langar að nota þetta tækifæri til að segja ykkur litla sögu af þingstörfunum sem sýna að orð og efndir þessarar ríkisstjórnar fara engan veginn saman. Fyrir nokkrum vikum kom á fund efnahags- og skattanefndar ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Til umræðu var frumvarp hæstv. samfylkingarráðherrans Össurar Skarphéðinssonar. Þar lagði ráðuneytisstjórinn fram afar athyglisvert minnisblað sem gagn í málinu þar sem hann lagði til að fjárfestingarsamningurinn og frumvarpið vegna Helguvíkur yrði endurskoðað. Af hverju? Svo unnt væri að hækka skatta á verkefnið. Enn fremur lagði ráðuneytisstjórinn til að núgildandi samningur og lög vegna Reyðaráls yrðu einnig tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að hækka einnig skattana á það verkefni.

Ráðuneytisstjóri Vinstri grænna lýkur minnisblaðinu á þeim hugleiðingum að hugsanlegar bætur til aðila vegna þessa yrðu líklega minni en beina tjónið sem hann kallar það að láta samningana standa óbreytta. Þessir samningar sem hann vildi skattleggja eftir á gerðu menn til fjölda ára og auðvitað í þeirri góðu trú að þeir yrðu haldnir. Hvernig eigum við svo að trúa því að þessi ríkisstjórn sem markvisst bregður fæti fyrir frekari uppbyggingu á þessu sviði ætli sér að skapa 2.000 störf í orkufrekum iðnaði? Ég hræðist svona vinnubrögð, herra forseti, og ég get gert mér í hugarlund hvaða áhrif þessi skilaboð hefðu á möguleika Íslands til að laða að sér erlenda fjárfestingu í framtíðinni og fyrir orðspor okkar út á við. Svona vinnubrögð þarf að varast og stjórnvöld mega alls ekki bæta á þá óvissu sem einkennir íslenskt efnahagslíf um þessar mundir. Sjálfstæðisflokkurinn fer fram með tvö meginmarkmið að leiðarljósi fyrir næstu missiri, að verja heimilin í landinu og tryggja atvinnu. Við höfnum atvinnuleysi og teljum það algerlega óásættanlegt í íslensku samfélagi.

Góðir Íslendingar. Komandi kosningar snúast um val á milli tveggja kosta. Fyrri kosturinn er áframhaldandi vinstri stjórn sem mun leggja sig fram um að hjálpa Íslendingum að læra að lifa með þeim vanda sem við blasir, ríkisstjórn sem mun setja fötu undir lekann í stofunni en ekki laga þakið, ríkisstjórn sem ætlar að búa til störf með sjóðum, ríkisstjórn sem hefur meiri trú á stjórnmálamönnum en fólkinu í landinu.

Hinn kosturinn, kæru Íslendingar, góðir landsmenn, er að trúa því að við klárum þetta mál.