136. löggjafarþing — 129. fundur,  7. apr. 2009.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:37]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Í byrjun febrúar ákváðum við framsóknarmenn að verja minnihlutastjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar falli. Við áttum okkur á því að slíkt væri ekki líklegt til vinsælda en að brýn þörf væri á því að losa þjóðina út úr þeirri stjórnarkreppu sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar var komin í. Þjóðin sat fyrir.

Við framsóknarmenn settum fram fjögur skilyrði: Í fyrsta lagi kröfðumst við þess að komið yrði á fót stjórnlagaþingi vegna þess að við teljum það einu leiðina til að byggja upp réttlátara og sanngjarnara Ísland úr rústum kreppunnar. Núna er eina tækifærið til að færa valdið til þjóðarinnar og láta hana endurskipuleggja starfshætti Alþingis. Aðeins þannig útrýmum við því ráðherraræði sem viðgengist hefur hér á landi. Aðeins þannig endurvekjum við traust almennings á Alþingi.

Allir foreldrar hafa lent í því að krakki sem ekki fær það sem hann vill, leggst á gólfið öskrandi, sparkandi og lemjandi í allar áttir. Það er algerlega útilokað að hægt sé að rökræða við barn í þannig ástandi alveg eins og það virðist til of mikils mælst að fá vitrænar samræður við sjálfstæðismenn í stjórnarskrármálinu. Ómerkilegri málflutningur hefur ekki fyrr heyrst í sölum Alþingis. Það er til eitt gott ráð sem er best til þess fallið að bregðast við óþekktinni í krakkanum og hátterni sjálfstæðismanna. Það er einfaldlega að láta þá eiga sig, gefa þeim gott, langþráð frí.

Stjórnarskrármálið er eina úrræðið til að útrýma því flokksræði sem viðgengist hefur hér á landi. Við verðum að gera alþingismönnum kleift að fylgja þeim stjórnarskrárbundnu skyldum sínum að standa á eigin sannfæringu. Það má til að mynda aldrei gerast aftur að hæstv. forseti stöðvi lýðræðislega umræðu í sölum Alþingis. Sú ákvörðun var ekki bara sú furðulegasta sem tekin hefur verið af forseta Alþingis í sögu íslenska lýðveldisins heldur einnig sú aumkunarverðasta. Hver var tilgangurinn? Það er því miður ekki til marks um það öngstræti sem löggjafarvaldið var komið í heldur um valdhroka ríkisstjórnarinnar. Því verður að breyta.

Við framsóknarmenn kröfðumst þess í öðru lagi að lagðar yrðu fram efnahagstillögur til að bjarga heimilum og fyrirtækjum landsins. Í mínum huga er það einfalt, það er bara spurning um að taka ákvörðun. Viljum við gefa eftir af skuldum heimilanna og atvinnulífsins eða viljum við missa fólk og fyrirtæki í gjaldþrot? Þeirri spurningu verður að svara áður en gengið er til kosninga. Greiðsluaðlögun og frestun gjaldþrots eru aðgerðir sem eru allra góðra gjalda verðar en þær leysa fólk ekki úr skuldasnörunni. Er ekki miklu hagkvæmara fyrir þjóðfélagið að fólkið haldi vinnunni, að fólk haldi heimilum sínum þannig að það geti haldið áfram að greiða niður skuldir sínar? 20% leiðrétting er réttlátasta og sanngjarnasta leiðin í þjóðfélagi sem hefur farið 10 skref fram úr sér. Stígum a.m.k. tvö skref til baka. Ég gef ekkert fyrir málflutning og bókhaldssvindl Steingríms J. Sigfússonar um að þessi leið muni setja Íbúðalánasjóð á hausinn. Það liggur fyrir að Íbúðalánasjóður mun aldrei fá innheimtar kröfur sem hann á útistandandi auk þess sem búið er að afskrifa stóran hluta þeirra. Við framsóknarmenn munum að sjálfsögðu standa áfram vörð um Íbúðalánasjóð.

Í þriðja lagi kröfðumst við framsóknarmenn þess að þjóðin gengi til kosninga þann 25. apríl nk. Þjóðin stendur nú frammi fyrir þeirri stóru ákvörðun um hverjir séu best til þess fallnir að leiða þjóðina úr þeim efnahagsvandræðum sem hún glímir við. Í mínum huga er miðjustjórn undir leiðsögn Framsóknarflokksins best til þess fallin. Það er brýn þörf á því að í ríkisstjórn verði stjórnmálaflokkur sem þorir að taka erfiðar ákvarðanir eins og við framsóknarmenn höfum sýnt og sannað að við erum reiðubúnir að gera.

Þegar við ákváðum að verja minnihlutastjórnina falli var það ekki síst í ljósi þess að við töldum nauðsynlegt að gefa Sjálfstæðisflokknum frí. Þjóðin þarf nauðsynlega á því að halda og Sjálfstæðisflokkurinn einnig. Ég vil að hér verði mynduð félagshyggjustjórn án aðkomu sjálfstæðismanna. Það verður með einum eða öðrum hætti að vinda ofan af þeirri frjálshyggju sem tröllriðið hefur samfélaginu með tilheyrandi ofurlaunum, skattaskjólum og sjálfhverfum útrásarvíkingum. Fyrir þá sem eru efins um fullyrðingar mínar vil ég benda á að við framsóknarmenn getum nú þegar myndað þriggja manna meiri hluta með Sjálfstæðisflokknum og frestað kosningum. Það ætlum við ekki að gera og það munum við ekki gera.

Ég vil taka þátt í því að byggja upp réttlátt og sanngjarnt þjóðfélag. Ég vil að í þannig þjóðfélagi fái allir notið jafnréttis í víðasta skilningi þess orðs. Ég vil að börnin okkar fái öll notið menntunar og heilbrigðisþjónustu óháð efnahag, stöðu og búsetu foreldra þeirra. Ég vil líka að við tökum mið af hagsmunum hvers landshluta fyrir sig í stað þess að keyra eina stefnu yfir allt þjóðfélagið. Hagsmunir hvers landshluta eru mismunandi og við eigum að vinna út frá styrkleika hvers svæðis í stað þess að einn landshluti rísi á kostnað annars.

Góðir landsmenn. Samvinna og samstillt átak er næst á dagskrá.