136. löggjafarþing — 129. fundur,  7. apr. 2009.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:43]
Horfa

Jón Bjarnason (Vg):

Herra forseti. Ágætu landsmenn. Fram undan er mikið verk að vinna. Í hönd fara einar afdrifaríkustu kosningar í áratugi. Átján ára samfelldum valdatíma Sjálfstæðisflokksins er loksins lokið og þjóðin stendur á vissan hátt á krossgötum. Valið stendur annars vegar um nýfrjálshyggjuna og græðgina sem hrundi yfir þjóðina síðastliðið haust og hins vegar um framtíð með nýjum gildum og nýrri sýn. Meðal þessara gilda eru heiðarleiki og ábyrgð. Við höfum reynt að hafa þessi gildi í stafni þeirrar ríkisstjórnar sem við Vinstri græn höfum átt aðild að í rúma tvo mánuði og þannig verður það líka hjá þeirri ríkisstjórn sem við Vinstri græn stefnum að því að mynda eftir kosningar.

Stærstu tækifærin í endurreisn atvinnulífs þjóðarinnar og efnahagslífsins liggja ekki hvað síst á landsbyggðinni, í auðlindum þjóðarinnar til lands og sjávar. Við þurfum að tryggja íbúum landsins alls jafnræði óháð búsetu, bæta samgöngur og umferðaröryggi, jafna flutningskostnað og koma á háhraðatengingum um allt land. Það er sanngirniskrafa að stuðlað verði að jöfnun orkuverðs og tryggt aðgengi að raforku um allt land.

Tryggja þarf þjóðareign á fiskveiðiauðlindinni. Við erum staðráðin í að vinda ofan af núverandi fiskveiðistjórnarkerfi, tryggja vernd fiskstofnanna og byggðatengja fiskveiðiheimildirnar að hluta. Við Vinstri græn viljum skapa fleiri tækifæri í sjávarbyggðunum, t.d. með því að auka smábátaútgerð, fullvinnslu aflans innan lands, stuðla að fiskeldi og vistvænum og sjálfbærum veiðum. Rétt íbúanna í sjávarbyggðunum til nýtingar auðlindanna meðfram ströndum landsins verður að tryggja, sömuleiðis nýliðun í sjómannastéttinni.

Blása þarf til sóknar í landbúnaði og matvælaframleiðslu með bættu rekstrarumhverfi, markaðsátaki og stuðningi við nýjungar á borð við upprunamerkingar, heimaframleiðslu og lífræna ræktun. Efla þarf kornrækt, garðyrkju og skógrækt. Ég hef nefnt innlenda áburðarframleiðslu. Það er lífsnauðsyn að standa vörð um matvæla- og fæðuöryggi þjóðarinnar og tryggja störfin í matvælaiðnaði og því höfnum við hinu illræmda matvælafrumvarpi frá Evrópusambandinu.

Velferðarmál eru atvinnumál. Standa þarf vörð um störf í heilbrigðis- og menntakerfi um allt land. Skapa þarf ný störf með mannaflafrekum framkvæmdum í viðhaldi og endurbótum og verkefnum í anda sjálfbærrar þróunar.

Ferðaþjónustan er nú þegar ein stærsta atvinnugrein landsmanna með um 180 milljarða kr. veltu á síðasta ári. Nú er kominn tími til að gera Ísland að enn eftirsóttari áfangastað ferðamanna allan ársins hring. Þar liggja mikil sóknarfæri.

Má ég minna á skipaiðnaðinn, úrvinnsluiðnaðinn, umhverfistækni og með því að nýta hvers konar svæðisbundnar náttúruauðlindir með sjálfbærum hætti. Það eru gjörbreyttir tímar. Við verðum að efla allt sem innlent er.

Góðir landsmenn. Ég var á Ísafirði í gær. Þar kom til mín maður sem vissulega átti í kröggum en var þó bjartsýnn. Jón, sagði hann, við erum reiðubúin til að herða ólina, berjast í gegnum erfiða tíma ef við getum verið þess fullviss að ekki verði aftur snúið til þess ómanneskjulega ástands sem var fyrir hrunið.

Góðir áheyrendur. Við eigum okkur bjarta framtíð ef haldið er rétt á málum. Landið okkar er ríkt af auðlindum, náttúrufegurð, sögu og menningararfi. Við Vinstri græn bjóðum fram vaska sveit kvenna og karla við kosningarnar í vor. Fram undan er sameiginleg ferð okkar inn í framtíðina og vorið. Við leggjum okkur öll undir. Við leitum ykkar stuðnings, áheyrendur góðir, við að skapa okkur öllum vinstri grænt vor. — Góðar stundir.