136. löggjafarþing — 129. fundur,  7. apr. 2009.

almennar stjórnmálaumræður.

[21:48]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Fl):

Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Það er óþarfi að fjalla hér um af hverju staða okkar er eins og hún er í dag. Nú er þörf á því að við tölum um lausnir sem geta leitt okkur út úr þeim vanda sem við erum í.

Það er augljóst mál að við verðum að skera niður í opinbera geiranum og við verðum jafnvel að hækka skatta á suma. En það sem ekki er hvað síst nauðsynlegt að gera er að auka tekjur þjóðarinnar og spara gjaldeyri eins og hægt er. Hvernig förum við að því?

Við höfum möguleika á að auka fiskveiðar í flestum tegundum og því ættu tekjur þjóðarinnar að geta aukist um 70–80 milljarða. Það er ekki bara hagur sjómanna, fiskvinnslufólks og útgerðarmanna að auka tekjur af fiskveiðum og vinnslu. Það er hagur okkar allra því að þessi tekjuaukning mun auka skatttekjur til ríkisins, útsvarstekjur og hafnargjöld til sveitarfélaga og fleiri störf koma til með að verða í boði í greininni. Við í Frjálslynda flokknum viljum innkalla allar veiðiheimildir og leigja síðan út til útgerðarmanna og við viljum að allur fiskur verði seldur í gegnum fiskmarkaði.

Við í Frjálslynda flokknum viljum einnig aðskilja veiðar og vinnslu og við leggjum mikla áherslu á það að handfæraveiðar verði gefnar frjálsar yfir sumarmánuðina. Einnig vil ég nefna að það liggja miklir möguleikar í aukinni atvinnusköpun í tengslum við þorskeldi og kræklingaeldi sem við viljum stuðla að með öllum ráðum.

Herra forseti. Við í Frjálslynda flokknum leggjum til breytingar við það kvótakerfi sem nú er við lýði í landbúnaði. Við leggjum í því sambandi áherslu á að í stað beingreiðslna og framleiðslustyrkja verði komið á búsetustyrkjum, þ.e. grænum styrkjum. Þeim er ætlað að tryggja búsetu í hinum dreifðu byggðum landsins í stað þess miðstýrða kerfis sem nú er við lýði þar sem bændur geta hvorki framleitt né selt afurðir án þess að ríkið komi þar við sögu. Í landbúnaði eru miklir möguleikar í tengslum við nýja framleiðslu. Sem dæmi í því sambandi nefni ég kornrækt og aukningu í framleiðslu á grænmeti fyrir innanlandsmarkað. Til að svo geti orðið þarf að lækka raforkuverð til garðyrkjubænda. Til að spara gjaldeyri þurfum við að stofna grasköggla- og áburðarverksmiðjur sem anna innanlandsþörf.

Tryggja verður nýliðun í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar í landbúnaði og sjávarútvegi og því er mikilvægt að breyting verði gerð á núverandi kerfum. Við verðum einnig að nýta orkuna sem finnst í iðrum jarðar og er til staðar í fallvötnum, til raforkuframleiðslu, raforku sem við getum nýtt til atvinnuuppbyggingar í tengslum við iðnað sem þarfnast mikillar orku. Í þessu sambandi nefni ég álver, áliðngarða, álþynnuverksmiðju, og netþjónabú sem dæmi. Við verðum að koma framkvæmdum í gang við álver í Helguvík og á Bakka.

Í ferðamannaiðnaðinum eru einnig miklir möguleikar á að auka tekjur og ber þar að nefna þá aukningu sem þegar hefur orðið í þeirri grein sem hefur lagt áherslu á sjávartengda ferðaþjónustu. Þetta form á ferðamannaiðnaði hefur sýnt sig vera atvinnuskapandi í þeim sjávarbyggðum sem nú þegar bjóða upp á þessa þjónustu. Það er nauðsynlegt að slíkum fyrirtækjum verði gert kleift að stunda þessa starfsemi og ríkið leggi ekki stein í götu þessara fyrirtækja eins og nú er gert ráð fyrir með því að kvótasetja þann fisk sem veiddur er í tengslum við þennan iðnað.

Kæru landsmenn. Möguleikar okkar til atvinnusköpunar eru miklir. Það eru miklir tekjumöguleikar í nýsköpun sem tengist sprota- og hátæknifyrirtækjum. Það byggir allt á því að við eigum og verðum að nýta þau mikilvægu verðmæti þjóðarinnar sem felast í vel menntuðu ungu fólki, þ.e. í mannauðnum.

Kæru landsmenn. Við göngum nú í gegnum miklar þrengingar en munum með sameiginlegu átaki vinna okkur út úr þeim. Forsenda þess er að við tryggjum atvinnu fyrir alla og getum með því móti nýtt og notað þær náttúruauðlindir sem eru sameign þjóðarinnar.

Kæru landsmenn. Flokkar eiga að vera fyrir fólk en ekki öfugt.