stjórnarskipunarlög.
Hæstv. forseti. Ég ítreka þá áskorun mína að hæstv. forseti kalli nú málið í nefnd að nýju og fresti 2. umr. Þannig má vinna betur í málinu.
Formsatriði vefjast ekkert fyrir mér, ég veit bara að það er skynsamlegt í þessu tilviki að hafa langan aðdraganda, fá og hlusta á sérfræðingana og finna leið sem er í sátt. Vandinn í þessu dæmi er að málið lyktar allt af pólitískum hrossakaupum, það er ekkert hægt að draga fjöður yfir það. Þegar svoleiðis er hljótum við að krefjast þess að við ræðum þetta af fullri einlægni, gefum því tíma og hlustum á þá sérfræðinga sem þekkja málið best.
Ég er sammála því að oft er hægt að vinna mál hratt og vel, en af einhverjum ástæðum setja allar lýðræðisþjóðir heims sem við berum okkur saman við og hafa skrifaða stjórnarskrá þennan varnagla í stjórnarskrána, það er ekki bara sisona í gamni. Það hljóta að vera þær leiðir sem við erum öll sammála um.
Ef þetta var svo vel ígrundað, hæstv. forseti, eins og hv. þingmaður sagði, hví þá svona margar breytingartillögur á svona skömmum tíma? Ég taldi meira en tug breytingartillagna koma fram. Maður veltir fyrir sér hvernig í ósköpunum sé hægt að halda því fram að þetta hafi verið svona vel ígrundað ef allt í einu koma allar þessar breytingartillögur á síðustu stundu.
Varðandi auðlindirnar finnst mér að sjálfsögðu vert að við ræðum hvers konar ákvæði auðlindir í þjóðareign á að vera vegna þess að við eigum ekki bara auðlindirnar, framtíðin okkar (Forseti hringir.) á auðlindirnar.