136. löggjafarþing — 130. fundur,  8. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[17:47]
Horfa

Lúðvík Bergvinsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Umræðan um fundarstjórn forseta hefur tekið á sig alls konar myndir. Ég kom í salinn í dag þar sem þessi umræða fór fram og þá snerist umræðan um það hversu framúrskarandi forsetinn væri og að þingmenn jafnvel í stjórnarliðinu væru að finna að framgöngu forseta. Þá var umræðan öll á þann veg að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins bæru mikið traust til forseta og þeir lýstu því einarðlega í sínu máli.

Ég kannaði málið fyrir nokkrum mínútum bara til að upplýsa um þá stöðu en ræðan sem flutt var áðan af hv. þm. Arnbjörgu Sveinsdóttur var númer 416. Frá því að stjórnarskrármálið kom á dagskrá var þetta ræða númer 416 um fundarstjórn (Forseti hringir.) forseta. Ég vildi (Forseti hringir.) bara upplýsa þetta, virðulegi forseti, þannig að það hefur ekkert komið mér á óvart að (Forseti hringir.) í þeirri umræðu sem hér fór fram. (Gripið fram í: … um fundarstjórn forseta.)

(Forseti (ÞBack): Ég tel að ekki hafi fleiri þingmenn kvatt sér hljóðs um fundarstjórn forseta.)