136. löggjafarþing — 130. fundur,  8. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[18:39]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra kom í andsvari áðan inn á eitt atriði sem skiptir verulegu máli í þessari umræðu og það er um aðferðina við að breyta stjórnarskrá. Hæstv. fjármálaráðherra flutti ágæt rök fyrir því að breyta stjórnarskrá með þeim hætti að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um breytingar.

Ég vildi nota tækifærið til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann teldi ekki að ef við gerðum þá breytingu og þá breytingu eina í þessari lotu, á þeim fáu dögum sem eru fram til kosninga, værum við að búa okkur til þá stöðu að unnt yrði að breyta stjórnarskrá án alþingiskosninga í framtíðinni, þess vegna í náinni framtíð, og hvort að með því móti gæfist ekki betri tími til að fara yfir, hlusta á sjónarmið fræðimanna og komast að sameiginlegri niðurstöðu um þær aðrar breytingar sem felast í núverandi frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra og annarra flutningsmanna.

Þetta er atriði sem við sjálfstæðismenn höfum alloft nefnt við þessa umræðu, hvort við kæmum ekki með því móti til móts við sjónarmið flutningsmanna frumvarpsins, að unnt yrði að gera stjórnarskrárbreytingar án þess að efna þyrfti til alþingiskosninga og opna þar með fyrir frekari breytingar sem þá gæfist kostur á að ræða og vinna betur en gert hefur verið.

Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að ég átti þess kost á árunum 2005–2007 að sitja ásamt hæstv. fjármálaráðherra í stjórnarskrárnefnd sem skipuð var af forsætisráðherra. Þrátt fyrir að okkur greindi á um ýmsa þætti í sambandi við stjórnarskrárvinnuna efaðist ég aldrei í því starfi um að hæstv. fjármálaráðherra vildi vanda til verka og standa þannig að málum að það skilaði góðri niðurstöðu í góðri sátt. Ég varð aldrei var við annað á þeim tíma.

Þess vegna kemur mér á óvart að hæstv. fjármálaráðherra skuli taka þátt í þeim leik sem hér er í gangi sem ég held að snúist meira um stjórnmálaástandið og komandi kosningar en inntak frumvarpsins. Ég held það.

Ég tel að í málflutningi okkar sjálfstæðismanna í þessari umræðu hafi fyrst og fremst komið fram ítrekuð varnaðarorð við því að ganga til stjórnarskrárbreytinga án yfirvegunar, án nægilegs undirbúnings og án þess að leitað sé nægilegrar sáttar.

Allt eru þetta atriði sem ég tel að eigi að vera leiðarljós þeirra sem fjalla um stjórnarskrárbreytingar, að það eigi að vera leiðarljós að vanda til verka, ná sem víðtækastri sátt. Það á líka að vera leiðarljós að vinna þannig að þessum málum að sjónarmið sem flestra komist að, sjónarmið fræðimanna, hagsmunaaðila og annarra aðila sem hafa áhuga á stjórnarskipunarmálum. Það er öllum ljóst að í því ferli sem hefur verið frá því að þetta frumvarp varð til, eða hugmyndin um þetta frumvarp, í byrjun febrúar hafa þau meginsjónarmið ekki verið höfð að leiðarljósi. Ég ætla ekkert að rekja þann feril en eins og ég hef áður sagt í þessari umræðu tel ég hann til vitnis um hvernig eigi ekki að breyta stjórnarskrá. Ég held að það sé kjarni málsins.

Þess vegna skora ég á hæstv. fjármálaráðherra að hugsa sinn gang í þessum efnum og velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að ná í sátt þeirri niðurstöðu á þessu þingi að gera breytingar á 79. gr. með það fyrir augum að opna á frekari stjórnarskrárbreytingar, þess vegna í náinni framtíð, og leiða þannig þetta deilumál til lykta.

Ég bendi á að þrátt fyrir að þetta mál hafi færst í nokkuð flokkspólitískan búning hér innan þings eins og stundum vill verða erum það ekki við sjálfstæðismenn einir sem vörum við þeim breytingum sem hér eru lagðar til. Margoft hefur verið vitnað til ummæla fjölmargra fræðimanna, hagsmunaaðila og annarra aðila sem hafa gefið umsagnir um þetta mál og hafa varað við þeim breytingum og þeirri aðferð sem hér er. Flestir hafa sagt: Stöldrum við. Bíðum aðeins við. Gerum þetta hægar. Förum ekki í neitt í óðagoti eða flönum ekki að neinu. Ég held að það ætti að vera okkar leiðarljós í þessu.

Við gætum eins og ég segi tekið ákvörðun um að breyta aðferðinni við að breyta stjórnarskrá. Þar með værum við komin úr þeirri sjálfheldu eða hvað við viljum kalla það sem menn hafa stundum haldið fram að stjórnarskrárbreytingar væru í eins og sakir standa eða eins og stjórnlögin eru núna orðuð. Þar með værum við búin að létta þeirri pressu af ríkisstjórn, sitjandi þingmeirihluta og þinginu að það þyrfti að efna til kosninga í hvert skipti sem menn hafa í hyggju að breyta stjórnarskránni. Þar með væri þetta opið og þar með ynnist okkur tími, þótt ekki væri nema í nokkrar vikur eða mánuði í viðbót, til að hugsa þessi mál betur, ræða við fleiri aðila, ná víðtækari sátt og komast að niðurstöðu sem við getum verið ánægð með.

Ég get a.m.k. ekki séð, hæstv. forseti, að þetta upplegg okkar sjálfstæðismanna sé á nokkurn hátt ómálefnalegt, að það sé á nokkurn hátt óeðlilegt að við leggjum málin upp með þessum hætti. Ég teldi þvert á móti mjög óeðlilegt ef við legðum málin ekki upp með þessum hætti eins og sakir standa í stjórnmálum.

Ég held að það sé alveg augljóst að þetta mál hefur ekki fengið næga umræðu, hvorki úti í samfélaginu né á þingi. Margar hugmyndirnar hafa vissulega verið ræddar lengi án þess að niðurstaða hafi fengist en sum atriði í frumvarpinu, verulega stór og veigamikil, sérstaklega sem lúta að stjórnlagaþingi, hafa svo til enga umræðu fengið í þjóðfélaginu. Þetta er hugmynd sem skaut upp kollinum í pólitískri umræðu í janúar, hafði ekkert verið á dagskrá áður, ekki neins flokks. Enginn flokkur hafði tekið þetta til umræðu, a.m.k. ekki svo áratugum skipti, fyrr en þá lýðræðisnefnd Framsóknarflokksins. Ég verð að játa með fullri virðingu fyrir þeim góða flokki og því góða fólki sem áreiðanlega hefur starfað í lýðræðisnefnd Framsóknarflokksins að ég tel það ekki fullnægjandi umræðu í þjóðfélaginu þó að sá hópur hafi komið sér saman um einhverjar niðurstöður í þessu sambandi. Umræðan í þeim hópi tók ekki til annarra en þeirra sem þar áttu sæti og endurómaði síðan á flokksþingi Framsóknarflokksins. Við hin sem ekki vorum í lýðræðishópnum og ekki erum í Framsóknarflokknum höfum ekki átt nein tök á að taka þátt í þeirri umræðu.

Ég tel að sú hugmynd sem er vissulega veigamikill þáttur í frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra og meðflutningsmanna hans hafi alls ekki verið rædd með fullnægjandi hætti, enda ber frumvarpið þess merki og nefndarálit meiri hluta sérnefndar um stjórnarskrármál sömuleiðis. Þar eru margvíslegar vangaveltur um stjórnlagaþingið án þess að komist sé að niðurstöðu um mjög veigamikla þætti, eins og t.d. hvernig eigi að kjósa til þessa þings og hvernig það eigi að vera skipað. Gefinn er upp fjöldi þingfulltrúa en allt annað er látið liggja í lausu lofti.

Þess vegna finnst mér alveg augljóst að þessi hugmynd er ekki rædd í þaula. Hún hefur ekki verið rædd nægilega vel. Það hefur ekki verið farið nægilega vel yfir hana og ég held að það væri óráð að samþykkja hana á þessum vordögum, einfaldlega vegna þeirra sjónarmiða sem hv. þm. Jón Magnússon benti á áðan, um þá stjórnarskipunarlegu óvissu sem mundi skapast af því að setja hér á fót nýtt stjórnlagaþing við hlið Alþingis með Alþingi áfram með stjórnlagavald sem ég hygg að væri einsdæmi í (Forseti hringir.) sögunni. Ég hygg að það sé einsdæmi (Forseti hringir.) og að aldrei nokkurs staðar (Forseti hringir.) í nokkru lýðræðisríki hafi mönnum dottið í hug að hafa tvö (Forseti hringir.) þjóðkjörin þing á sama tíma til að fjalla um stjórnarskrárbreytingar.