136. löggjafarþing — 131. fundur,  14. apr. 2009.

framhald þingfundar og borgarafundur.

[15:12]
Horfa

Forseti (Einar Már Sigurðarson):

Vegna orða hv. þingmanns vill forseti taka fram að það er rétt hjá hv. þingmanni að hér hefur skapast sú hefð að gera hlé á þingfundum á meðan slíkir fundir standa yfir og er það ætlun forseta að gera slíkt hið sama í kvöld. Er óskað atkvæðagreiðslu um þá tillögu sem forseti kynnti hér áðan?