stjórnarskipunarlög.
Herra forseti. Það er nokkuð sérstakt að við þingmenn stöndum hér og spyrjum hæstv. forseta hvað eftir annað um ýmsa þætti og það er svona hipsum happs hvort við fáum svör við því eða ekki. Ég lýsi enn eftir því að sá flokkur sem hefur verið mjög í umræðunni, Framsóknarflokkurinn, skuli ekki eiga fulltrúa í salnum. Ef ætlunin er raunverulega sú að halda áfram umræðu um þetta mál þá tel ég að Framsóknarflokkurinn þurfi að vera hérna vegna þess að ljóst er að ef ætlunin er sú að gera breytingar á frumvarpinu í þá veru sem nefnt hefur verið í fjölmiðlum þá varðar það mjög áherslur Framsóknarflokksins. Ég tel því alveg ófært að ljúka þeirri umræðu nema við heyrum sjónarmið framsóknarmanna.
Raunar er athyglisvert að Frjálslyndi flokkurinn skuli ekki heldur vera við umræðuna (Forseti hringir.) því að fulltrúar Frjálslynda flokksins hafa lagt áherslu á eitt tiltekið ákvæði (Forseti hringir.) og það er ekki það sama og Framsóknarflokksins. Þess vegna held ég að mikilvægt sé fyrir umræðuna (Forseti hringir.) að fulltrúar þessara flokka eigi kost á því að taka þátt í henni en umræðan fari ekki fram í skjóli nætur.