136. löggjafarþing — 131. fundur,  15. apr. 2009.

stjórnarskipunarlög.

385. mál
[01:54]
Horfa

Forseti (Kristinn H. Gunnarsson):

Forseti þekkir öll þessi mál sem hv. þingmaður nefndi og hefur tekið þátt í umræðum um þau og finnst þessi umræða sem hér hefur verið algjör barnaleikur á við sumt það sem áður hefur gerst, en fagnar því að hv. þingmenn eru fúsir að halda áfram umræðunni og það verður svo enn um hríð.