136. löggjafarþing — 132. fundur,  15. apr. 2009.

tekjuskattur.

410. mál
[18:05]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Herra forseti. Ég vil bara vekja athygli á því að hér er verið að greiða atkvæði við 3. umr. um mikilvægt frumvarp sem hækkar vaxtabætur um 30%. Þetta er ein af þeim ráðstöfunum sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir til að koma til móts við þær fjölskyldur í landinu sem mest þurfa á því að halda. Ég fagna því sérstaklega að góð samstaða er um þetta mikilvæga mál og ég segi já.