136. löggjafarþing — 132. fundur,  15. apr. 2009.

tilhögun þingfundar.

[18:07]
Horfa

Forseti (Einar Már Sigurðarson):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag, þ.e. þar til umræðum um dagskrármálin er lokið. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Ef svo er ekki skoðast hún samþykkt.