136. löggjafarþing — 133. fundur,  16. apr. 2009.

sjúkraskrár.

170. mál
[15:04]
Horfa

Dögg Pálsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sjónarmið hv. þm. Péturs Blöndals að auðvitað er mjög mikilvægt að vera vakandi yfir þeim hættum sem fylgja rafrænni skráningu sjúklingaupplýsinga og sjúkraskrárupplýsinga og það er nákvæmlega það sem við gerðum í nefndinni sem samdi þetta frumvarp. Við vorum mjög meðvituð um þetta og raunar kemur fram í athugasemdum við frumvarpið að sumir telja að við höfum verið allt of vakandi við það. Ég tel því að í þessu frumvarpi séu allar þær girðingar sem nauðsynlegar eru.

Ég get hins vegar ekki hjá því komist að vera ósammála því að það sé með nokkrum hætti hægt að líkja þessu frumvarpi við lögin um gagnagrunn. Þetta eru alls óskyld mál. Í þessu frumvarpi sem við erum að fjalla um hér er talað um að hagnýta upplýsingatæknina í þágu sjúklinga með þeim jákvæðu afleiðingum að heilbrigðiskerfið getur hagrætt og þar með sparað.

Í gagnagrunnsmálinu var um það að ræða að þriðji aðili, utanaðkomandi aðili, aðili sem ekki var heilbrigðisstofnun, átti að fá aðgang að öllum sjúkraskrárupplýsingum ef um það samdist við þá sem varðveittu skrárnar og geta notað þær með ópersónugreinanlegum hætti í þágu vísindarannsókna og einhverra heilsufarsrannsókna. Ég get sagt það fyrir sjálfa mig að ég var alla tíð á móti lögunum um gagnagrunninn og skildi aldrei tilgang þeirra laga. Ég bara mótmæli því að hægt sé að líkja á nokkurn hátt þessu frumvarpi um sjúkraskrár við lögin um gagnagrunn á heilbrigðissviði sem sem betur fer ætti að fella úr gildi því að þau áform hafa farið út um þúfur.