136. löggjafarþing — 133. fundur,  16. apr. 2009.

Ríkisendurskoðun.

416. mál
[19:12]
Horfa

Frsm. fjárln. (Ásta Möller) (S):

Virðulegi forseti. Í fjarveru formanns fjárlaganefndar Gunnars Svavarssonar og annarra stjórnarliða í fjárlaganefndinni flyt ég nefndarálit um frumvarp til laga um breytingar á lögum um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997. Frumvarpið kemur frá fjárlaganefnd.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Svein Arason, Inga K. Magnússon, Lárus Ögmundsson og Jón L. Björnsson frá Ríkisendurskoðun. Þá hafa nefndinni borist umsagnir frá fjármálaráðuneytinu og Ríkisendurskoðun.

Við meðferð málsins kom fram af hálfu Ríkisendurskoðunar að í framkvæmd geti reynst erfitt að veita fjárlaganefnd beinan aðgang að gögnum sem hún aflar á grundvelli rannsóknarheimilda sinna samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laganna. Nefndin leggur til að stofnunin hafi í þeim tilvikum heimild til að veita upplýsingar í formi skýrslna eða greinargerða sem hún hefur tekið saman um fjárhagsmálefni þeirra aðila sem umræddar rannsóknarheimildir taka til enda hindri það ekki eðlileg eftirlitsstörf fjárlaganefndar.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við 1. málsl. efnismálsgreinar 1. gr. bætist: eða leggja fram skýrslu.

Undir nefndarálitið rita ásamt þeirri sem hér talar hv. þm. Gunnar Svavarsson, formaður, Björgvin G. Sigurðsson, Ellert B. Schram, Guðjón A. Kristjánsson, Illugi Gunnarsson, Jón Bjarnason, Kristján Þór Júlíusson og Magnús Stefánsson.