136. löggjafarþing — 135. fundur,  17. apr. 2009.

veiting ríkisborgararéttar.

454. mál
[20:38]
Horfa

Lúðvík Bergvinsson (Sf):

Virðulegi forseti. Um leið og ég fagna því að Íslendingum hefur fjölgað um eina 18 vil ég líkt og hv. þm. Gunnar Svavarsson segja: Takk fyrir mig. Þetta eru búin að vera ánægjuleg 14 ár og hér hefur maður kynnst mörgum. Ég vil segja að þrátt fyrir að á köflum hafi blásið hér um þingsali ganga allir, held ég, sæmilega sáttir frá þessum leik. Ég óska, líkt og Gunnar, þingheimi velfarnaðar og segi líkt og hann: Takk fyrir mig.