137. löggjafarþing — 1. fundur,  15. maí 2009.

kosning forseta.

[16:17]
Horfa

Aldursforseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist ein tilnefning, um 10. þm. Reykv. s., Ástu R. Jóhannesdóttur. Eru aðrar tilnefningar?

Aðrar tilnefningar hafa ekki borist. Ásta R. Jóhannesdóttir er því ein í kjöri.

Þar sem aðeins einn er í kjöri er það ætlun forseta að láta kosninguna fara fram með atkvæðagreiðslukerfinu ef ekki eru athugasemdir við þann hátt á kosningunni. Kerfið er þannig stillt að jafna má við leynilega kosningu. Töflurnar á veggjum munu aðeins sýna hverjir hafa neytt atkvæðisréttar síns en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Ástu R. Jóhannesdóttur ýti á já-hnappinn en þeir sem skila vilja auðu ýti á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt, og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni. Hefst nú kosningin.

 

[Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Ásta R. Jóhannesdóttir , 10. þm. Reykv. s., hlaut 59 atkvæði, 3 þingmenn greiddu ekki atkvæði og einn var fjarverandi.]