137. löggjafarþing — 2. fundur,  18. maí 2009.

stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:35]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Kæru landsmenn. Hvað á þjóðin skilið af okkur, nýju þingi og nýjum þingmönnum? Aldrei í langri þingsögu Íslendinga hefur orðið viðlíka endurnýjun þingheims og nú á þessu vori og því skal enn spurt: Hvað á þjóðin skilið af okkur? Ég nefni ný vinnubrögð. Ég hampa þingræðinu á kostnað ráðherraræðis, ég bendi á hollustu við almenning í stað flokksklafa og síðast en ekki síst nefni ég virðingu hvers þingmanns fyrir skoðunum annarra. Já, hvað á þjóðin skilið af okkur? Við skulum spyrja okkur þessarar spurningar í hvert einasta sinn sem við göngum hingað í hús. Það gengur ekki að lunginn úr ræðutíma þingmanna fari í það að fjargviðrast hverjir við aðra. Hér í þingsölum hefur allt of mikill tími farið í að lítillækka fólk og svo sem til hvers? Pólitísk hávaðarifrildi hafa sjaldnast komið miklu í verk sakir þess að þau ala á óheilindum. Nú er lag að spara stóru orðin og veita fremur kröftunum í stóru verkin. Þjóðin á heimtingu á því, hún væntir þess að við gerum hvort tveggja í senn, tölum og vinnum af viti.

Til að svo megi verða þarf líka að laga Alþingi. Hér í þingsölum þarf kraftur þjóðarinnar að heyrast og hann má ekki kæfa með krumlum framkvæmdarvaldsins. Hér á þingið að tala, ekki embættismannakerfið. Andi íslenskra laga verður að vera manneskjulegur og þess þá heldur að fulltrúar þjóðarinnar vinni lögin almennilega í nefndum sínum í stað þess að samþykkja þau óséð af kontór kerfisins.

Góðir landsmenn. Þau þáttaskil sem nú eru í efnahags- og stjórnmálasögu þjóðarinnar verða að kenna okkur margt. Aldrei aftur skulum við glata jöfnuðinum í íslensku samfélagi. Því er brýnna en áður að við stöndum vörð um varanleg gildi en látum ekki blekkjast af stundargróða óbeislaðrar markaðshyggju. Íslenskt velferðarsamfélag má aldrei aftur verða tilraunastofa fyrir sjálfumglaða sérhagsmunagæslu. Pólitískar lausnir á ekki að sníða að þörfum útvalinna. Þær eiga undanbragðalaust að þjóna almannahagsmunum.

Verkefni dagsins er að laga samfélagið. Við þurfum að laga það að þeirri samfélagsgerð sem best hefur dugað á Íslandi, samfélagi jöfnuðar og réttlætis og frelsis með gott betur en snefil af ábyrgðartilfinningu. Eitt meginverkefni nýs þings á að vera að jafna lífsgæði fólks óháð fjárhag en einnig óháð búsetu. Að því gefnu að við séum öll sammála um að ein og sama þjóðin búi í landinu verðum við að jafna rétt fólks til samgangna, heilsugæslu og mennta. Með öðrum orðum: Gerum ráð fyrir einu samfélagi í þessu landi.

Það þýðir ekki síst að jafna verður starfsskilyrðin og starfstækifærin í landinu. Eða finnst okkur það enn þá sjálfgefið að atvinnulíf úti á landi sé einsleitt en fjölbreytnin ráði ríkjum suðvestanlands? Ég segi nei. Stærsta byggðaaðgerð Íslandssögunnar var að velja stjórnsýslunni stað á einu horni landsins. Það á að hafa afleiðingar. Jöfnun flutningskostnaðar er viljayfirlýsing um að samkeppnisrekstur verði stundaður um allt land. Ójöfnuður í þessu efni er ávísun á aðstöðumun. Ætlum við áfram að verja hann? Ég segi nei. Hér verða menn að tala skýrt og taka af öll pólitísk tvímæli. Vilja menn jafna aðstöðu atvinnufyrirtækja í landinu eða ekki? Vilja menn eitt og sama samfélagið eða ekki?

Kæru landsmenn. Hvað á þjóðin skilið af okkur, nýjum þingmönnum? Hún á það skilið núna þegar samdráttur einkennir efnahag okkar að við stöndum vörð um velferðina og sköpum þjóðarsátt um grunngildin. Í því efni verðum við að hafa eitt í huga framar öllu: Gerum ráð fyrir öllum í samfélaginu, gerum nákvæmlega ráð fyrir öllum í samfélaginu.

Núna, þegar við erum að súpa seyðið af því að hafa einkum gert ráð fyrir útvöldum á undraverðum sérkjörum gömlu stjórnmálanna, skulum við sérstaklega hugsa til þeirra sem fengu minnstu tækifærin í sjálfu góðærinu. Þeim skal hlíft. Það skal vera hluti af nýrri þjóðarsátt, þeim skal hlíft.

Góðir Íslendingar. Nú byggjum við upp og nú vinnum við eins og menn, þingmenn og þjóðin sjálf. Við höfum ekki lengur efni á gallsúrri og gamalli pólitík. Búum til samfélag í stað sundrungar, þjóðin á það skilið. — Gleðilegt sumar.