heimahjúkrun.
Virðulegi forseti. Orð stjórnarsáttmálans standa auðvitað fyrir sínu. Það verkefni sem okkur er falið, heilbrigðisráðherra og þeim sem hér stendur, er að finna leið til að hrinda þessu í framkvæmd. Það munum við gera.
Markmiðið er augljóst og kemur líka fram í þessum tilvitnuðu orðum, þ.e. að samþætta þjónustuna og fella hana í einn farveg í lok kjörtímabilsins í hendur sveitarfélaga. Á þeirri vegferð stikum við auðvitað fram hjá mörgum leiðarvörðum. Við munum fara í þetta verk núna og setja á fót væntanlega verkefnisstjórn á næstu dögum eða vikum og hefja þessa vegferð. Markmiðið er að þessi þjónusta verði samþætt og í því er auðvitað mikill hagræðingarmöguleiki að hafa á einni hendi jafnt heimaþjónustu og heimahjúkrun svo dæmi sé tekið. Í því að ein og sama yfirstjórnin sé yfir hvoru tveggju felast miklir hagræðingarmöguleikar og (Forseti hringir.) hægt er að bæta til muna þjónustu við þá sem þurfa á henni að halda.