endurskipulagning þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja.
Frú forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að við leggjum mikið upp úr samráði og samstarfi við aðila í samfélaginu við þessar erfiðu aðstæður og það á við um þetta mál eins og annað. Það er t.d. yfirstandandi fundur núna í Karphúsi sem ég væri á ef ég væri ekki hér, þar sem forustumenn ríkisstjórnarinnar eru að ræða við aðila vinnumarkaðarins um hvernig þessu nána samstarfi verður hagað á næstu dögum og vikum.
Frumvarp þetta hefur borið á góma endurtekið á fundum okkar með aðilum vinnumarkaðarins, gerði það áður en það var lagt fram og við vissum um mismunandi sjónarmið í þeim efnum. Málið gekk síðan til þingnefndar og þar var aflað umsagna um það og við höfum tekið mið af þeim umsögnum við endurvinnslu frumvarpsins sem og ábendingum frá utanaðkomandi ráðgjöfum. Frumvarpið hefur breyst m.a. í þá átt að það er núna opnara og valkvæðara eins og ég fór yfir í framsöguræðu minni. Ég tel því að komið hafi verið til móts við mismunandi sjónarmið sem uppi voru í þessum efnum eftir því sem kostur var. Málið fer síðan væntanlega til nefndar (Forseti hringir.) og þingnefndin getur kallað eftir nýjum viðbrögðum við því.