137. löggjafarþing — 3. fundur,  19. maí 2009.

endurskipulagning þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja.

1. mál
[15:15]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Við hljótum öll að hafa nokkurn skilning á því að Framsóknarflokkurinn sé hættur að líta í baksýnisspegilinn enda hætt við því að hann sæi þar einmitt Framsóknarflokkinn. En ég verð að segja að sá málflutningur að hæstv. fjármálaráðherra sé með einhverjum hætti að flytja frumvarp um Sovét-Ísland, óskalandið, eða eitthvað í þá veruna er satt að segja fráleitt boðlegur því að menn verða auðvitað að gangast við því sem orðið er og því umhverfi sem við störfum í.

Hér hrundi allt hinn 6. október síðastliðinn og þegar hv. þm. Birkir Jón Jónsson vísar til þess að við séum að temja okkur önnur vinnubrögð þá er það einmitt að fara ekki í þrætubókarlist eins og þá og tala hér um ríkisvæðingu og ganga með brigslum á menn. Það er einfaldlega þannig að hér hafa lykilfyrirtæki á fjármálamarkaði komist í eigu ríkisins. Í þeim fyrirtækjum eru í viðskiptum fjölmörg fyrirtæki sem eru í verulegum vandræðum og menn þurfa ekki að leggjast í viðameiri rannsóknir en svo að líta á forsíður dagblaðanna í morgun til að sjá umræður og umfjöllun um það þegar fyrirtæki ríkisins hefur, síðast í gær, þurft að leysa til sín umtalsverðan eignarhlut. Auðvitað eru í því álitaefni, ólík sjónarmið og skiptar skoðanir en það sem hér er um að ræða er fyrst og fremst fyrirkomulag á þeirri yfirtöku ríkisins, fyrirkomulag á því að taka tímabundið yfir starfsemi sem komin er í blindgötu, vinna úr því, endurskipuleggja það og koma því aftur út. Fyrirkomulag á því sem þegar er verið að gera. Því miður er það svo að fjölmörg fyrirtæki hafa átt í mjög miklum erfiðleikum og þurft hefur að hlutast til um rekstur þeirra og eignarhald vegna gríðarlegrar skuldsetningar. Auðvitað stundum vegna þess að þeir eigendur sem þar hafa verið hafa ekki séð fyrir frekar en flestir aðrir það sem hér hefur gerst en jafnvel líka ekið býsna greitt eftir brautinni. Við skulum ekkert horfa fram hjá því að menn eru auðvitað um leið ábyrgir fyrir þeim ákvörðunum sem þeir taka í sínum rekstri.

Það frumvarp sem hér er lagt fram hefur hæstv. fjármálaráðherra rakið ágætlega að er ekki flutt vegna þess að menn hafi sérstakan áhuga á því. Hér er auðvitað um tímabundna ráðstöfun að ræða. Hér er skýrt kveðið á um það að þau fyrirtæki sem í þennan farveg kynnu að fara, og kannski þarf aldrei að grípa til þess, skuli selja aftur.

Ég held hins vegar að hér hafi ýmsar ágætar ábendingar komið fram í umræðunni um atriði sem ræða þarf betur í útfærslunni á þessu eignarhaldsfélagi. Hluti eins og hv. þm. Birkir J. Jónsson nefndi um skuldbindingar félagsins, hvaða takmarkanir kunni að vera á þeim skuldbindingum sem þar eru. Ræða þarf með hvaða hætti við getum sem best tryggt að þetta sé armslengd frá pólitíkinni. Að þarna séu í stjórn og fyrirsvari og forsvari þeir valinkunnu sómamenn og konur sem hæstv. fjármálaráðherra vísaði hér til sem hafa faglega og óumdeilt þekkingu og reynslu sem best getur nýst við þessi vandasömu og erfiðu verkefni. Við þurfum líka að ræða, eins og gert var í umfjöllun í efnahags- og skattanefnd fyrir kosningar, um þessa afmörkun. Hvaða fyrirtæki það eru eða hvernig skilgreina skuli þau fyrirtæki sem geti fallið undir lögin. Ég held að það sé ótvírætt til framfara í málinu eins og það nú liggur fyrir að þar er gert ráð fyrir að þingið komi að þeirri afmörkun, að það sé ekki eftirlátið framkvæmdarvaldinu eða reglugerðarvaldi með einföldum hætti heldur komi þingið að því með umsögn eins og gert er ráð fyrir.

Sá þáttur sem ég held þó að mesta umræðu hljóti að þurfa er hvernig standa eigi að því að selja þessi fyrirtæki aftur. Hneykslið við sölu ríkisbankanna má ekki endurtaka sig. Við þurfum á vettvangi Alþingis að hafa algerlega skýrar og ljósar reglur um það hvernig standa eigi að sölu fyrirtækja sem komast í hendur ríkisins á þessum tímum og þurfa að komast aftur út á markað. Vegna þess að það hvernig það var gert hér á árum áður þegar ríkisbankarnir voru seldir í hendur einkaaðila var sannarlega mikið ófarnaðarskref og ég hygg að þeir sem fylgdust með rannsókn fjárlaganefndar á kjörtímabilinu 2003–2007 á því hvernig að þeirri sölu var staðið séu ekki í nokkrum vafa um að þar hafi margar ákvarðanir leikið lykilhlutverk í því sem á eftir kom. Ég held að það sé sérstaklega mikilvægt að við förum vel yfir þann þátt málsins og ræðum hann í umfjöllun nefndarinnar. En ég vek athygli á því að hæstv. fjármálaráðherra tók fram hér við umræðuna að aðkoma þingsins eigi líka að tryggja að þeim þáttum sem að því lúta og ég held að sömuleiðis megi ræða með hvaða hætti nákvæmlega það sé réttast og hentugast.

Ýmsum ábendingum fyrri efnahags- og skattanefndar hefur verið mætt að hluta eða í heild þegar málið er lagt fram nú og ég hlýt að þakka fyrir það og hef gert ráðstafanir til þess að hægt sé að kalla efnahags- og skattanefnd saman fljótt og vel til að fara að vinna í málinu. Það er gríðarlega mikilvægt við þær aðstæður sem núna eru að stjórnvöld hafi þau tæki sem á þarf að halda til að takast á við þau flóknu og vandasömu verkefni sem nú eru. En ég legg áherslu á að eftir þeirri ráðgjöf sem menn hafa fengið og að bestu manna yfirsýn er hér um að ræða tæki sem geta skipt máli t.d. varðandi stór fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við alla banka. Út frá samkeppnissjónarmiðum geta líka sannarlega verið kostir því samfara að hafa eignarhaldið fremur í félagi af þessu tagi en í eignarhaldsfélögum á vegum ríkisbankanna, með fullri virðingu fyrir þeim, því að ríkisbankarnir, eins og bankar almennt, eiga í viðskiptum við fyrirtæki í öllum greinum og nú þegar hafa komið upp ásakanir og deilur um það að bankarnir séu að nota stöðu sína gagnvart einstökum fyrirtækjum til að hvetja til viðskipta þeirra á milli. Það að afmarka með þessum hætti eignarhaldið í sérstöku félagi kemur náttúrlega í veg fyrir slíka tortryggni og slíkar ásakanir.

Sömuleiðis vil ég segja um það álitaefni hvort ríkið eigi eitt að eiga þetta félag að ég er almennt þeirrar skoðunar að farsælast sé að annaðhvort eigi ríkið starfsemi eða það eigi hana ekki og það sé almennt helst til ófarnaðar í eignarhaldi hins opinbera á félögum þegar verið er að blanda saman einkaeignarhaldi og opinberu eignarhaldi því að þetta ólíka eignarhald á að þjóna ólíkum markmiðum. Eignarhald fjárfesta, sjóða eða lífeyrissjóða eða annarra slíkra aðila á að lúta markmiðum um ávöxtun en eignarhald hins opinbera á að lúta sjónarmiðum um almannahagsmuni. Það að blanda þessu tvennu saman í einhvers konar samkrulli í hlutafélögum þar sem hið opinbera á hluta og einkaaðilar eða sjóðir með ávöxtunarkröfu annan hluta getur einfaldlega valdið árekstrum og því að inni í einu og sama félaginu séu sjónarmið sem ekki er hægt að brúa vegna þess að þau eru einfaldlega eðlisólík. Það geta komið upp tilvik þar sem ekki verður þjónað í senn markmiðum um ávöxtun og sjónarmiðum um almannahagsmuni og þess vegna fari best á því að fyrirtæki séu annaðhvort ohf., þ.e. í opinberri eigu, eða ehf. eða hf., þ.e. í einkaeign. Með því að hleypa fleiri eignaraðilum að þessu félagi mundi líka skapast hætta á að það dragist á langinn að leysa starfsemi þess upp. Markmið ríkisins er að koma þeirri starfsemi sem þarna verður hugsanlega tekin yfir sem fyrst aftur í rekstur, auðvitað við sanngjörnu verði en ávöxtunarkrafan er ekki aðalatriðið eins og hún yrði fyrir þá sjóði sem kynnu að verða meðfjárfestar ef opnað væri fyrir slíkt.

Þennan almenna fyrirvara vil ég hafa um það atriði að ríkið eigi þetta eitt og að við hljótum öll að vera tilbúin til að hlýða á röksemdir með og móti þessu atriði eins og öðru í þeirri umfjöllun sem fram undan er í efnahags- og skattanefnd.