137. löggjafarþing — 3. fundur,  19. maí 2009.

endurskipulagning þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja.

1. mál
[15:55]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það hafi bara ekki nokkur maður áhuga á því að ríkið eigi allt atvinnulíf í landinu og ekki einu sinni helminginn af því eða ¼ af því. Ég held að enginn pólitískur ágreiningur sé uppi um það lengur að þegar kemur að almennum atvinnufyrirtækjum í samkeppnisumhverfi er það ekki markmiðið að ríkið eða opinberir aðilar eigi þau. En veruleikinn er eins og hann er og við þurfum að vinna út frá honum.

Ég vil gera eina athugasemd við það sem hv. þingmaður nefndi réttilega, að vísu um fjárfestingarfélögin, að í fæstum tilvikum erum við að tala um þau lengur. Flest þeirra eða mörg þeirra eru komin í þrot og eru í gömlu bönkunum. Við erum að tala um hin raunverulegu rekstrarfélög. Það eru þau að sjálfsögðu sem skipta mestu máli. Afskriftirnar eru þegar að verða gríðarlegar í eignarhaldsfélögunum, „The Groups“ sem hétu svo, það var orðið ófínt að láta þau heita venjulegum íslenskum nöfnum hérna um tíma og þau hétu öll Group eitthvað eða hitt. Þau eru mjög komin að fótum fram flest hver. Það er reksturinn sem á bak við stendur, hin eiginlegu rekstrarfélög sem skipta okkur öllu máli, og að sú starfsemi fari ekki niður og verðmætasköpunin og störfin sem þar eru á ferðinni haldist.

Það er fátt nýtt undir sólinni og ekki heldur okkar vandi. Aðrar þjóðir hafa lent í þessu því miður tímabundið og við líka. Færeyingar máttu yfirtaka stóran hluta síns atvinnulífs og koma því síðan aftur út í lífið á ákveðnu árabili. Færeyska landsstjórnin átti svo til allan sjávarútveg í Færeyjum tímabundið en tókst síðan að koma honum á nýjan leik í dreifða eignaraðild og við Íslendingar eignuðumst stóran hluta okkar sjávarútvegs- og útflutningsfyrirtækja á árunum 1989–1991 í gegnum Hlutafjársjóð og Atvinnutryggingasjóð. Sú endurskipulagning tókst mjög vel og ríkið seldi síðan niður hlut sinn sem nam allt að 49% í fjölmörgum stórum sjávarútvegs- og iðnfyrirtækjum á ákveðnu árabili, trappaði niður eign sína og seldi burt hlut sinn, oft til heimaaðila ef þeir réðu við að kaupa, og yfirleitt með hagnaði þegar upp var staðið.