fundir í viðskiptanefnd.
Frú forseti. Ég ber mikla virðingu fyrir hreinskilni í svari hv. þm. Magnúsar Orra Schrams en mér finnst mikilvægt á þessum fyrstu dögum þingsins að við áttum okkur á því á hvaða vegferð við erum, hvort við ætlum að gera þetta saman hér og vinna á vettvangi þingnefnda sem einn maður þannig að stjórn og stjórnarandstaða geti sameinast í verkum á þessu mikilvæga þingi. Á það að vera þannig að stjórnarliðar séu á einhverjum fundum úti í bæ — ég hef á tilfinningunni að þeir séu í gangi uppi í einhverjum ráðuneytum — og stjórnarandstöðunni sé haldið fyrir utan mjög mikilvæga vinnu? (Gripið fram í.)
Við þurfum að koma okkur upp úr þessu fari. Hv. þm. Álfheiður Ingadóttir sagði að engin verkefni væru á borði viðskiptanefndar en ég vil minna hv. þingmann á það að við báðum um skýrslu frá viðskiptaráðherra um hvað hefði gerst hér í aðdraganda bankahrunsins. Hún var lögð fram rétt í aðdraganda (Forseti hringir.) síðustu kosninga og mjög lítil svör komu þar fram. Ég held að hv. formaður viðskiptanefndar hefði átt að taka þá skýrslu fyrir á fundi (Forseti hringir.) nefndarinnar til þess að fara yfir það hversu (Forseti hringir.) rýr svör við þingmenn fáum við þeim spurningum sem við beinum (Forseti hringir.) að framkvæmdarvaldinu.