137. löggjafarþing — 5. fundur,  25. maí 2009.

fundir í viðskiptanefnd.

[15:40]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég vil lýsa því yfir að að sjálfsögðu munum við í hv. viðskiptanefnd vinna saman við yfirferð á þeim málum sem þangað verður vísað. Við munum einnig taka þar fyrir þau mál sem hv. nefndarmenn óska eftir að komist á dagskrá nefndarinnar. (Gripið fram í.) Það kunna að vera ný vinnubrögð í augum hv. þm. Eyglóar Harðardóttur en ég heiti því að þingmaðurinn þarf ekki að bíða lengi eftir fundi í viðskiptanefnd úr því sem komið er. Ég held að við hv. þingmenn ættum að sameinast um að flýta þeim málum í gegn sem liggja fyrir þinginu þannig að þau geti farið í nefnd þar sem hið eiginlega samráð og samvinna fer fram.

Átta mál hafa verið kynnt inn í nefndina, (Forseti hringir.) nokkur eru þegar fram komin, mörg eru á dagskrá í dag. Við ættum að geta komið þeim til nefndarinnar þannig að við munum hafa nóg að gera.