137. löggjafarþing — 5. fundur,  25. maí 2009.

breytingar á ýmsum lögum um óréttmæta viðskiptahætti.

13. mál
[17:37]
Horfa

viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki sérstaklega að taka afstöðu til hugmynda framsóknarmanna í þessu máli. Ég hef bent á og tel það skynsamlega leið að þegar fyrirtæki sem því miður þurfa allt of mörg að fara í gegnum það sem kallað er fjárhagsleg endurskipulagning þar sem eigendur færa niður allt sitt hlutafé eða annað eigið fé og fyrirtækin eru færð í hendur annarra sem leggja til nýtt eigið fé og fá þau í hendur með skuldum að einhverju leyti færðum niður þá verði það gert þannig að skuldirnar verði í krónum þegar komið er út úr þessu ferli. Það tel ég vera einfalda og eðlilega aðgerð. Með því er ekki á nokkurn hátt verið að þvinga fyrri eigendur eða tilvonandi eigendur til að sætta sig við annað en það að fá fyrirtæki með skuldum sem það getur væntanlega staðið undir að væntingum bæði bankans og nýrra eigenda og þær skuldir séu í íslenskri mynt.