137. löggjafarþing — 5. fundur,  25. maí 2009.

breytingar á ýmsum lögum um óréttmæta viðskiptahætti.

13. mál
[17:38]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg):

Frú forseti. Ég ætla örstutt að blanda mér í umræðu um þetta mál sem hæstv. viðskiptaráðherra hefur mælt fyrir og var reyndar lagt fram á síðasta þingi en var þá ekki útrætt eða afgreitt. Hér er um að ræða mál sem á rætur að rekja til samningsins um hið Evrópska efnahagssvæði, tilskipun sem hér er verið að innleiða. Í 3. gr. segir: „Lög þessi fela í sér innleiðingu á 16. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og -ráðsins 2005/29 frá 11. maí 2005“ o.s.frv.

Það sem ég vil aðallega velta upp í þessari umræðu og gera að umtalsefni er í sjálfu sér ekki efni þessarar tilskipunar heldur það með hvaða hætti þetta mál ber að Alþingi.

Að undanförnu hefur orðið talsverð umræða um það hvernig standa eigi að innleiðingu á tilskipunum frá Evrópusambandinu. Það gerist alloft að hingað koma lagafrumvörp sem fela í sér innleiðingu á tilskipunum Evrópusambandsins og jafnframt í sumum tilvikum að fallið sé frá hinum stjórnskipulega fyrirvara sem gerður er á vissum sviðum við tilskipanir Evrópusambandsins.

Það er alveg ljóst að í þeim vinnureglum sem settar voru á Alþingi 1994, sem því miður hefur ekki verið fylgt nægilega vel eftir, á að taka inn tilskipanir fyrst í formi þingsályktunartillagna sem fara til umfjöllunar í utanríkismálanefnd áður en þær koma í lagafrumvarpi frá tilteknum ráðherra og fara þá til umfjöllunar í viðkomandi fagnefnd. Þannig hagar því til um þetta mál eftir því sem ég fæ best séð, og hæstv. ráðherra leiðréttir það þá ef ég fer rangt með, að það hefur ekki fengið umfjöllun sem tilskipun á vettvangi utanríkismálanefndar. Ég tel að það sé bagalegt vegna þess að það er hin almenna regla sem á að vera höfð í heiðri. Og það er ekki bragur á því að taka á þessum tilskipunum með því að setja þær beint inn í lagatexta þannig að löggjafarvaldið hafi aldrei í raun tekið afstöðu til þess hvort beri að taka viðkomandi mál inn og veita því lagagildi fyrr en málið kemur tilbúið sem lagafrumvarp.

Þessa umræðu höfum við tekið alloft að undanförnu og þessi sjónarmið hafa verið uppi og fyrir liggur hjá forsætisnefnd Alþingis tillaga um sérstakar reglur um þinglega meðferð svokallaðra EES-mála þar sem tekin eru af öll tvímæli um þetta fyrirkomulag.

Í 1. gr. er t.d. sagt, með leyfi forseta: „Viðskiptaráðherra skal í reglugerð kveða á um að viðauki við reglugerð samkvæmt 1. mgr. og breytingar á honum sem innleiða á skuli hafa reglugerðargildi hér á landi.“

Þá vaknar sú spurning hvort með þessu sé verið að veita ráðherra, framkvæmdarvaldinu, heimild til að láta reglugerð í raun og veru hafa lagagildi hér á landi, þ.e. að gera breytingar sem eðli málsins samkvæmt ættu að vera í lagaformi, láta þær öðlast gildi með reglugerð. Það þýðir væntanlega að ef Evrópusambandið gerir breytingar á viðkomandi tilskipun þá koma þær breytingar ekki inn sem breytingar á lögum heldur öðlast lagagildi hér með reglugerð. Þetta tel ég að sé vond latína, standist varla og ég vil inna hæstv. ráðherra eftir því hvort þetta sé réttur skilningur hjá mér. Í athugasemd við 1. gr. segir síðan, með leyfi forseta:

„Það er því til mikils hægðarauka að breyta lögunum með þessum hætti enda þarf þá ekki að taka upp breytingar í lögin í hvert skipti sem breytingar eru gerðar á viðauka tilskipunarinnar“ — þ.e. það er þægilegt fyrir framkvæmdarvaldið að þurfa ekki að fara með lagabreytingar fyrir Alþingi heldur ákveða þær með reglugerð, þetta er stysta leiðin. Mér sýnist að verið sé að pakka þessu í þann búning að þessi mál geti gengið hratt og örugglega fyrir sig og verið sé að kippa einum millilið út úr lagasetningarferlinu og sá milliliður sé Alþingi sjálft, þ.e. löggjafarvaldið. Þetta finnst mér eiginlega ekki ganga og ég vil þess vegna inna hæstv. viðskiptaráðherra eftir því hvort þetta sé réttur skilningur hjá mér eða hvort ég sé að misskilja málið svona herfilega. Ef svo er væri gott að fá það fram í þessari umræðu. Að öðrum kosti tel ég fullt tilefni til þess fyrir hv. viðskiptanefnd, sem fær þetta mál til umfjöllunar, að skoða þennan þátt málsins sérstaklega.