137. löggjafarþing — 5. fundur, 25. maí 2009.
breytingar á ýmsum lögum um óréttmæta viðskiptahætti.
13. mál
Virðulegi forseti. Minn skilningur er ekki sá sami og hv. þm. Árna Þórs Sigurðssonar. Að því er mér skilst felur þessi breyting það í sér að ákveðin upptalning á gerðum verður birt með þeim hætti sem tilgreint er í frumvarpinu en það breytir því ekki að efnisleg umfjöllun um viðkomandi tilskipanir verður áfram með sama hætti og áður þannig að ekki er verið að draga úr aðkomu íslenskra stjórnvalda, þings eða annarra, að því ferli.