fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni og reyndar einnig Eygló Harðardóttur fyrir stuðning við málið efnislega. Ég treysti því eins og þau að viðskiptanefnd muni fara vel yfir þetta eins og önnur mál. Ef þörf er á að gera breytingar treysti ég því að það verði vel unnið.
Ég hef því miður ekki séð títtnefnt viðtal við Mats Josefsson og veit því ekki nákvæmlega til hvaða tölu hann er að vísa þegar hann talar um 85% af landsframleiðslu. Ég ætla því ekki að vera með neinar getgátur um það nákvæmlega í hvaða samhengi sú tala er sett fram. Ég veit hins vegar að það liggur fyrir að kostnaðurinn við endurreisn bankakerfisins og reyndar endurreisn íslensks efnahagslífs í heild verður allverulegur. En sá kostnaður hefur nokkurn veginn legið fyrir frá því síðastliðið haust. Auðvitað eru ákveðnir hlutir að skýrast og sumar tölur verða hærri en maður átti von á en aðrar lægri. En ég hef ekkert í höndunum sem bendir til þess að kostnaðarmatið, eins og það hefur verið sett fram, sé mjög fjarri lagi og ég hef alls ekkert í höndunum sem bendir til þess að kostnaðurinn verði miklu meiri en gefið hefur verið í skyn eða látið uppi opinberlega.
Forsætisráðherra hefur þegar upplýst um ágreininginn við Mats Josefsson og ég hef í sjálfu sér engu við orð hennar að bæta. Hún skýrði þetta vel í gær hér í þinginu.
Hvað varðar lán í erlendri mynt þá er það rétt að hluti af lausninni á þessum gjaldeyrisójöfnuði bankanna getur falist í því að lánum verði almennt að einhverju leyti breytt úr erlendri mynt í innlenda, auðvitað með samningum á milli lánveitenda og lántakenda. En ýmsar aðrar leiðir verða sjálfsagt farnar líka, farin verður blönduð leið við að leysa þann vanda.