fjármálafyrirtæki.
Virðulegi forseti. Nú verður viðskiptaráðherra að viðurkenna að hann er ekki einn þeirra mörgu Íslendinga sem lesa Uppsala Nya Tidning á hverjum degi. En nú er búið að bæta úr því með því að afhenda mér útprentun á því ágæta tungumáli sænsku þar sem fram kemur að Mats Josefsson segir að það muni kosta um 85% af vergri landsframleiðslu að endurreisa bankakerfið.
Ég veit ekki nákvæmlega til hvers hann er að vísa en hann getur ekki verið að vísa til þess fjár sem fer úr ríkissjóði til þess að endurfjármagna bankana og reyndar sparisjóðina og Seðlabankann því það verður talsvert lægri upphæð. En ef hann er að vísa til tjóns ríkisins í heild, og þá er m.a. talið með mikill hallarekstur sem veldur skuldasöfnun, Icesave og ýmislegt fleira, gæti hann auðveldlega komist upp í þessa tölu eða þar um bil.
Ég geri ráð fyrir að þessi tala liggi í því að ekki sé einungis verið að tala um beint framlag úr ríkissjóði inn í bankakerfið heldur fleiri kostnaðarliði sem einnig lenda, að minnsta kosti um tíma, á ríkinu. Þá er það ekkert nýtt í þessu, þá passar þessi tala nokkurn veginn við þær sem ég hef séð settar fram í þessu samhengi áður.