erfðabreyttar lífverur.
Frú forseti. Mig langar að fara örstutt yfir tilurð eða mögulegar afleiðingar af þessu frumvarpi. Ég hef smááhyggjur af því að við séum e.t.v. að setja einhvers konar þröskulda eða jafnvel tappa í þá nýsköpun og sprotastarfsemi sem við þurfum svo mikið á að halda í dag með því að hafa þessi lög með þessum hætti því að í nokkrum greinum í frumvarpinu kemur fram að verið er að leggja á kostnað, eftirlitsgjöld, menn eiga að borga umhverfismat og ýmislegt þess háttar. Ég velti svolítið fyrir mér hvort þetta sé það sem við eigum að vera að gera í dag þegar við þurfum að létta undir með þeim fyrirtækjum sem eru að reyna að skapa hér nýjungar og atvinnu.
Getur verið að reynt sé að koma því þannig fyrir að möguleikar þessara fyrirtækja til að vaxa og dafna verði ekki skertir með einhverjum hætti? Ef svo er er mjög mikilvægt að við sendum þau skilaboð til þeirrar nefndar sem þetta frumvarp fer í. Það er vel skiljanlegt að við höfum áhyggjur af erfðabreytingum í náttúrunni eða eitthvað slíkt en við verðum að gæta hófs því að mikil tækifæri felast líka í þessu.
Eins velti ég fyrir mér hvort þetta sé gangurinn varðandi Evróputilskipanir, að þær séu allt að átta ára gamlar þegar þær koma til okkar kasta. Þá finnst mér það mjög sérstakt. Eins og þetta lítur út er mjög líklegt að þetta muni þýða aukinn kostnað fyrir þá sem starfa að rannsóknum eða þróun í þessari grein og þá erum við að tala um stofnanir, félög, skóla, rannsóknastofnanir og annað. Við megum ekki setja hinni mögnuðu starfsemi í þessum félögum stólinn fyrir dyrnar.
Í II. kafla um meginþætti frumvarpsins stendur, með leyfi forseta:
„Þannig er m.a. gert ráð fyrir að umsækjanda beri að framkvæma mat á umhverfisáhættu sleppingarinnar/markaðssetningarinnar og að Umhverfisstofnun beri að semja matsskýrslu þegar sótt er um leyfi til markaðssetningar.“
Svo kemur:
„Loks er lögð sú skylda á umsækjanda, að fengnu leyfi til markaðssetningar, að hann tryggi að vöktun og skýrslugjöf sé í samræmi við þau skilyrði sem tilgreind eru í leyfinu.“
Þá eru væntanlega lagðar meiri skyldur á þá sem eru í þessari starfsemi. Í þessu tilviki getur það vitanlega og mun kalla á kostnað.
Eins varðandi 2. gr. hvet ég til þess að vandlega verði skoðað í nefnd að inni haldist klausan þar sem talað er um sérstöðu landsins á norðurslóð. Í samskiptum okkar við t.d. Evrópusambandið erum við alltaf að leggja áherslu á sérstöðu landsins út af norðlægri stöðu þess. Þess vegna held ég að það veiki okkur svolítið og veiki kannski stöðu málsins að taka þetta út.
Í 4. gr. er áfram talað um kostnað sem væntanlega lendir á þeim sem standa að þessu verkefni, þ.e. kostnað sem Umhverfisstofnun á að bera þarna, en væntanlega þarf Umhverfisstofnun fé einhvers staðar til að reka sig.
Síðan heldur þetta svona áfram í gegnum frumvarpið.
Ég velti því að lokum upp hvort ráðherra og aðrir hér séu ekki sammála mér um að við verðum að passa að lagafrumvarp þetta og reglugerðir sem fylgja í framhaldinu verði ekki til þess að eyðileggja eða skaða þá sprota- og nýsköpunarstarfsemi sem er á þessum vettvangi. Því bendi ég líka ráðherra á og hvet til þess að þeir hagsmunaaðilar sem starfa á þessum vettvangi verði að sjálfsögðu kallaðir til samráðs í nefndinni þannig að þeir miklu hagsmunir sem þarna eru í húfi komi örugglega strax fram.