framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.
Virðulegi forseti. Það er ljóst að ég hef komið rækilega við kaunin á þingmönnum og hæstv. ráðherra Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs með því að rifja upp þeirra eigin orð. Ég ætla ekkert að biðjast afsökunar á því.
Eins og ég sagði hér áðan þá fórum við yfir þetta með tilliti til þess hvort þetta stæðist lagalega og niðurstaða okkar hóps var sú að það gerði það. Hv. þingmaður sagði að ekki hefði verið gerð tilraun til að ná samkomulagi. Ég ræddi þessi mál við forustumenn bænda og ég gerði grein fyrir því að ég gat ekki ætlast til þess að þeir bæru ábyrgð á skerðingum á sínum eigin lífsgrundvelli, sínum eigin tekjugrundvelli þegar þarna var komið málum.
Eftir áramótin fóru hins vegar fram viðræður á milli mín og forustumanna bænda eins og forustumenn bænda hafa sjálfir gert grein fyrir. Þær viðræður lofuðu góðu og voru á mjög jákvæðum nótum. Þær voru raunar mjög á þeim nótum sem núna hefur verið innsiglað með samkomulagi bænda og ríkisvaldsins. Þess vegna fagna ég því að það skuli hafa verið niðurstaðan sem ég stefndi að sjálfur, að reyna að ná samkomulagi sem væri þolanlegt fyrir bændur og fyrir ríkið og sem fæli það í sér sem þarna er gert ráð fyrir og mundi m.a. leiða til þess að lenging yrði á gildistíma búvörusamninganna sem ég held að sé mjög þýðingarmikið í ljósi allrar þeirra óvissu sem annars er í þjóðfélaginu.
Ég vil líka vekja athygli á því að staða búvörusamninganna og kjaraleg staða bænda mun mjög mikið ráðast af því hverju fram vindur varðandi verðlagsmálin í landinu. Og því miður eru ákveðnar blikur á lofti. Stjórnleysi hæstv. ríkisstjórnar í peningamálum er með þeim hætti að gengi krónunnar hefur nánast verið í frjálsu falli. Það hefur aukið verðbólguþrýstinginn og það mun hafa kjaraskerðandi áhrif fyrir bændur. Þetta mál er auðvitað margslungið og lýtur ekki síst að því hvort hæstv. ríkisstjórn, sem er algjörlega ráðalaus, að því er virðist, og skapar stöðugt óvissu, beri gæfu til þess að ná utan um það mikla viðfangsefni sem hún hefur axlað með stjórnarþátttöku sinni.