137. löggjafarþing — 9. fundur,  28. maí 2009.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

56. mál
[18:47]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Vísitöluáhrifin eru útlistuð í töflu á bls. 4 í greinargerð með frumvarpinu eftir þeim þáttum sem frumvarpið felur í sér, bensíngjald, olíugjald, kílómetragjald, bifreiðagjald, áfengisgjald og tóbaksgjald, og þar eru útreiknuð áætluð vísitöluáhrif hverrar aðgerðar um sig sem í frumvarpinu felast. Ég tók það skýrt fram að að sjálfsögðu væri það neikvætt samhliða þessu máli að það hefur þessi verðlagsáhrif. Það er miður en ekki verður bæði sleppt og haldið og flestar aðgerðir sem lúta að neyslusköttum og öðru slíku hafa að sjálfsögðu verðlagsáhrif. Það verður ekki undan því vikist. Hér er reynt að velja vöruflokka sem eru þó ekki eins lífsnauðsynlegir í daglegri neyslu fólks eins og ýmislegt annað, auk þess er hér um að ræða hluti sem unnt er að breyta innan árs. Það bindur auðvitað nokkuð hendur stjórnvalda að ráðast í viðamiklar aðgerðir í ríkisfjármálum á miðju fjárlaga- og skattaári eins og allir skilja sem glímt hafa við þá hluti.

Ég vil líka leggja áherslu á það að þrátt fyrir þessar hækkanir og þrátt fyrir hækkanir á þessum gjöldum í desember vantar enn mikið upp á að þau hafi fylgt verðlagsþróun frá því að t.d. olíugjald var ákveðið árið 2005 og frá því að áfengisgjöldum og tóbaksgjöldum var síðast breytt áður en til breytinganna kom í tíð fyrri ríkisstjórnar í desember. Það má almennt reikna með að það vanti um 38–40% þangað til í desember að þróun þessara gjalda hafi fylgt verðlagi. Eftir á að hyggja var það mjög miður að menn skyldu ekki láta þessi gjöld nokkurn veginn fylgja verðlagsþróun, þá hefðum við haft meiri tekjur og búið við betri afkomu á þeim tíma og síður þurft að grípa til hækkana á þeim nú.