137. löggjafarþing — 9. fundur,  28. maí 2009.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

56. mál
[18:52]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Með leyfi forseta langar mig aðeins til að lesa tvær setningar úr athugasemdum við þetta lagafrumvarp. Þar segir:

„Nýleg endurskoðun á fyrri spám um þróun ríkisfjármála árin 2009 til 2013 hefur leitt í ljós að sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana þegar á þessu ári verður halli ríkissjóðs á árinu 2009 meiri en áætlað var og meiri en viðunandi getur talist.“

Þetta er sem sagt efnahagsaðgerðin sem verið er að grípa til, þ.e. að hækka skatta á þá vöruflokka sem hér voru upp taldir, fá með því tekjur upp á 2.700 millj. kr. en hækka um leið skuldir heimilanna um 8.000 millj. kr. Ég skal setja þetta aðeins betur í samhengi. Vaxtaójafnvægið sem nú ríkir í bönkunum kostar mánaðarlega á bilinu 8–10 milljarða. Hefði ekki verið nær að einbeita sér að því að leysa vandamálið með bankana? Þú hefðir getað, hæstv. fjármálaráðherra, lokað þessu gati ef þú hefðir gert þetta tveim mánuðum fyrr. Þá hefði ekki þurft að koma til skattahækkana, ekki neinna. Þetta eru skattahækkanir á fjölskyldurnar í landinu sem mega síst við því að missa tekjur núna. Þrátt fyrir að þetta sé kannski á vöruflokka sem sumum finnst óæskilegir þá eru neytendur að þessum vöruflokkum. Hæstv. fjármálaráðherra benti reyndar á að þetta væri hluti af þeirri neyslustýringu sem nú á að fara að eiga sér stað þar sem fólk velur ekki sjálft heldur eru það ráðuneytin sem velja hvað það er sem fólkið á að neyta. Gott og vel.

Það er líka hægt að setja þetta í samhengi við vaxtapólitík Seðlabankans. Er þetta til að auðvelda það að vextir verði lækkaðir í landinu á næstunni þegar skapaður er verðbólguþrýstingur? Það er kannski það allra mikilvægasta að við þingmenn erum ekki í neinu sambandi við hvað raunverulega er að gerast. Okkur er sagt að hér sé allt á heljarþröm, hvort sem það er hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra, að við skulum búa okkur undir þá mestu óáran sem yfir þessa þjóð hefur riðið en samhengið vantar algerlega. Svo fáum við einhverja 2.700 milljarða skattahækkun á nokkra vöruflokka. Ég hef reyndar aðeins hugmynd um hvað er að gerast en ekkert hefur komið fram í þinginu um það í hvaða samhengi þetta er.

Ég held að kominn sé tími til að stjórnarflokkarnir, ríkisstjórnin, sýni á spilin, hvert er vandamálið, hvernig á að leysa það, hvar á að hækka skattana. Nú vitum við að það er á brennivín og tóbak og bensín. Eru frekari skattahækkanir í bígerð? Hvar á að skera niður? Hvernig á að uppfylla þau skilyrði sem við höfum undirgengist við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn? Hvernig á að gera það? Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spyr að því. Ég spyr líka að því. Ég á kannski meiri heimtingu á að vita það en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn en það er annað mál.

Ég legg til, hæstv. fjármálaráðherra, að þú segir okkur í nokkrum vel völdum orðum — partur af hvaða plani er þetta? Útskýrðu fyrir okkur líka hvernig þið hafið geð í ykkur til að afla 2.700 millj. kr. fyrir ríkissjóð en leggja í leiðinni 8.000 milljarða hækkun á heimilin í landinu og sennilega þrisvar sinnum það á atvinnulífið.