137. löggjafarþing — 9. fundur,  28. maí 2009.

olíugjald og kílómetragjald o.fl.

56. mál
[19:05]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Mig undrar ekki þó að sumum líði ömurlega og aðrir kunni að vera með óbragð í munninum. Ég held að það sé engum blöðum um það að fletta að þannig mun okkur ýmsum líða á ýmsum stundum á næstu missirum því að það verkefni sem við okkur blasir er gríðarlegt. Það þarf að fást við fjárlagahalla sem nemur 170 milljörðum kr. eða hátt í 2 millj. kr. á hvert heimili í landinu. Því þarf að loka. Það vita það allir sem í þessum sal sitja að það mun þýða margar erfiðar ákvarðanir og það mun þýða að á tekjuhlið ríkissjóðs og gjaldahlið ríkissjóðs mun þurfa að fara yfir hvert einasta atriði og spara á öllum þeim stöðum sem hægt er spara á og auka tekjur þar sem því verður helst við komið án þess að það bitni, nema eins mildilega og mögulegt er, á þeim sem verst eru settir í landinu.

Þetta er ein af þeim aðgerðum. Hér er um að ræða að mæta því sem bæst hefur við þetta gat. Núna á þessu vorþingi horfum við því miður á það að þær áætlanir sem lagt var af stað með inn í árið af Sjálfstæðisflokknum — sem talar nú af ólíkt meira ábyrgðarleysi (Gripið fram í.) en hann hefur verið vanur — og af Samfylkingunni í fyrri ríkisstjórn fyrir þetta ár, og eins og ýmsir höfðu áhyggjur af voru þar ofmetnar tekjur að hluta og vanmetin gjöld að hluta. Við okkur blasir því viðbótarvandi kannski nálægt 20 milljörðum kr. sem taka verður á með tekjuöflun og með sparnaðaraðgerðum nú þegar því að það er skammt eftir af árinu. Það liggur fyrir að þau gjöld sem hér um ræðir hafa langt því frá fylgt verðlagi þann tíma sem liðinn er frá því að þau voru sett, þ.e. fyrir desember á síðasta ári, t.d. olíugjaldið 2005 og áfengisgjaldið. Það er því miður óhjákvæmilegt að til þeirra sé litið í þeirri erfiðu stöðu sem við erum í.

Það hefur auðvitað óæskileg verðlagsáhrif og því miður er það svo að allar þær skattbreytingar og gjaldabreytingar sem teknar verða ákvarðanir um á næstu missirum og árum leiða með einum eða öðrum hætti á endanum til verðlagsbreytinga. Sumar gera það vissulega hraðar en aðrar og í meira mæli en þær leiða allar til verðlagsbreytinga, þær leiða allar til breytinga á verðtryggingu. Ég held vissulega að full ástæða sé til að gagnrýna það samspil og að taka það til endurskoðunar enda hefur ríkisstjórnin falið Seðlabankanum að taka til skoðunar með hvaða hætti megi mest og best draga úr áhrifum verðtryggingar hér í samfélaginu. Við verðum að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á þessu ári. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að hafa gert góða grein fyrir tillögum sínum og ég hef gert ráðstafanir til þess að hægt sé að kalla saman fund í efnahags- og skattanefnd þegar að lokinni þessari umræðu og hún geti fengið til sín gesti til þess að fjalla þar um málið. Það hefur verið venja hér í þinginu að afgreiða tillögur sem þessar með hraði eðli málsins samkvæmt vegna þeirra beinu áhrifa sem það hefur.

Ég vil segja það um ræðu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í þessari umræðu að það er einhver allt annar stjórnmálaflokkur sem stóð í ræðustól en stjórnmálaflokkurinn sem ég sat með ríkisstjórn í desember. (Gripið fram í.) Í desember talaði ráðherra Sjálfstæðisflokksins fyrir nákvæmlega sams konar máli hér. (Gripið fram í.) Og formaður efnahagsnefndar Alþingis, samþingmaður og samflokksmaður hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar og meðnefndarmaður hans í efnahags- og skattanefnd, formaður hennar, tók málið þar inn. Sjálfstæðisflokkurinn afgreiddi þá sambærilegar hækkanir á þessi gjöld á 80 mínútum, virðulegi forseti. Það má heita ótrúlegur umskiptingur sá stjórnmálaflokkur sem þannig hegðar sér í stjórn í desember en talar svo með þessum hætti hér í stjórnarandstöðu í maí, ekki síst þegar haft er í huga hversu mikla ábyrgð (Gripið fram í.) hann ber á þeirri stöðu sem við erum í nú. Það verður auðvitað bara að segja það á íslensku, þó að hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni þyki kannski erfitt að heyra það, að verði þessar skattahækkanir að lögum í kvöld eru þær ekki síður í boði Sjálfstæðisflokksins en þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr.