atvinnuleysisbætur.
Frú forseti. Ég tel það áhyggjuefni þar sem Samfylkingin hefur verið með félagsmálaráðuneytið í þetta langan tíma að þetta skuli ekki hafa verið skoðað þegar af þeim þremur ráðherrum sem ég nefndi hérna áður.
Eins og hæstv. ráðherra benti á þá er það staðreynd að líkur eru á að Atvinnuleysistryggingasjóður muni tæmast núna í október. Hins vegar er alveg greinilegt í þeim reglum sem eru til staðar núna varðandi atvinnuleysisbætur að ósanngirni er í kerfinu. Það er núna þannig að hvort sem menn búa hjá mömmu og pabba eða eru að borga af eigin húsnæði eða leigja húsnæði þá eru þeir að fá sömu atvinnuleysisbæturnar. Ég sé ekki hver sanngirnin er í því.
Ég sé heldur ekki hvernig í ósköpunum það eigi að vera hægt að greiða fyrir þarfir barna (Forseti hringir.) með 276 kr. á dag fimm daga vikunnar og væntanlega eiga börn ekki að borða (Forseti hringir.) um helgar.