137. löggjafarþing — 12. fundur,  29. maí 2009.

fyrirtæki í opinberri eigu.

[11:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Þetta voru mjög skýr svör. Það er þá stefna ríkisstjórnarinnar varðandi þessi fyrirtæki og hefur verið að auglýsa stöður og ráða faglega inn. Það er gott að það kemur skýrt fram hjá hæstv. fjármálaráðherra. Það liggur þá bara fyrir og ágætt að aðilar viti af því að þannig hefur verið unnið. Menn geta þá farið yfir þau mál.

Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir skýr svör. Stefnan hefur verið og þannig hefur það verið unnið að stöður eru auglýstar og ráðið faglega. Það liggur þá bara fyrir.