137. löggjafarþing — 12. fundur, 29. maí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Frú forseti. Það er ákaflega gott að fá nokkuð afdráttarlaust svar frá hv. þm. Pétri H. Blöndal. En mig langar að vita hvort hann talar hér fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Er það stefna Sjálfstæðisflokksins nú að afleggja krónuna og taka upp aðra mynt?