137. löggjafarþing — 13. fundur,  3. júní 2009.

orkufrekur iðnaður.

[14:00]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki á þessum svörum. Í þeim liggur einfaldlega það að ríkisstjórnin er ekkert að gera í atvinnumálum, akkúrat ekki neitt. Þannig er það bara.

Hæstv. iðnaðarráðherra rakti hvaða sorglegu sögu við höfum að baki, sorglegu staðreyndir. Hún svaraði í engu hverju viðræðurnar eru að skila, hver staða þeirra mörgu verkefni sem eru á borði iðnaðarráðherra er, hvenær við megum vænta einhverrar útkomu úr þeim.

Nei, áherslur þessarar ríkisstjórnar liggja í skattahækkunum. Þær liggja ekki í atvinnuuppbyggingu til að efla það að fleiri geti borgað skatta og leyst þar með vanda heimilanna, þær liggja ekki þar. Hvað er t.d. að gerast hjá hæstv. ráðherra varðandi Helguvík? Er hæstv. ráðherra að staðfesta fjármögnunarsamning vegna Helguvíkur? Það er beðið eftir aðgerðum þar. Hvað annað er á borðinu? Það á að fara að stofna einhvern starfshóp. Ætli það verði ekki fyrst að hækka fleiri skatta? Ég reikna með því.