Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir svörin og öðrum sem hafa tekið þátt í umræðunni. Ég hefði að vísu kosið að fá miklu afdráttarlausari svör við spurningu minni um afstöðu hæstv. ráðherra til þeirrar hugmyndar að sameina Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskóla Íslands en það verður að virða það að hæstv. ráðherra vill ekki sýna á þessi spil sín. Það hefði samt verið liður í því að reyna að draga úr þeirri óvissu sem á margan hátt hefur verið að umlykja bæði Hólaskóla og skólann á Hvanneyri síðustu mánuði
Við skulum ekki gleyma því að Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri í núverandi mynd er tiltölulega nýleg stofnun. Eins og ég nefndi áðan fékk hann í heimanmund þá öflugu rannsóknastofnun sem var Rannsóknastofnun landbúnaðarins hin gamla sem auðvitað skiptir gríðarlega miklu máli fyrir uppbyggingu skólans og rannsóknarstarfsins þar. Það er svo að samþættingu þess starfs sem var verið að setja undir einn hatt með stofnun skólans á Hvanneyri er ekki lokið og það hefur út af fyrir sig skapað ákveðna óvissu, t.d. varðandi framtíð Garðyrkjuskólans á Reykjum. Þeim spurningum hefur ekki verið svarað nákvæmlega hvernig því námi eigi að vera háttað. Þess vegna er að mínu mati mjög slæmt að skólinn skuli núna búa við aukna óvissu sem umlykur skólann um þessar mundir og að því leyti skiptir gríðarlega miklu máli að reyna að eyða þeirri óvissu þannig að skólinn geti farið að átta sig á hvaða hlutverk honum verður ætlað í framtíðinni.
Það fer ekkert á milli mála að ástæðan fyrir því að þessir skólar, bæði á Hvanneyri og Hólum, hafa verið að þróast með svo jákvæðum hætti sem raun ber vitni er sú staðreynd að þeir hafa verið að breyta mjög starfsemi sinni. Ég vek t.d. athygli á því að námið í umhverfisskipulagi á Hvanneyri, sem er tiltölulega nýlegt, dregur núna að sér hér um bil helming nemenda við skólann og skólinn er því sannarlega að taka á í þeim efnum að reyna að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Það breytir ekki því að skólinn þarf auðvitað ákveðna vissu. Ég hvet þess vegna hæstv. ráðherra til að taka á þessum málum sem allra fyrst og reyna að eyða þessari óvissu þannig að menn geti farið að skipuleggja skólann (Forseti hringir.) og marka honum þann sess sem honum sannarlega ber.