137. löggjafarþing — 14. fundur,  4. júní 2009.

störf þingsins.

[10:31]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Nú liggur fyrir ákvörðun Seðlabanka Íslands um breytingar á stýrivöxtum. Niðurstaðan olli miklum vonbrigðum. Stýrivextir voru einungis lækkaðir um eitt prósentustig. Þar með hvílir áfram sá mikli þungi á íslenskum fyrirtækjum og heimilum sem endurspeglast í þessu geysiháa stýrivaxtastigi. Þetta stýrivaxtastig gerir öllu atvinnulífi á Íslandi mun erfiðara fyrir en ella að komast aftur af stað, skapa verðmæti og um leið verða aftur að þeim skattstofnum sem ríkissjóður þarf svo nauðsynlega á að halda. Ástæðan fyrir því hvers vegna stýrivextirnir eru svona háir er ekki sú að hér megi vænta gríðarlegrar verðbólgu vegna mikillar eftirspurnar í hagkerfinu. Þvert á móti er fram undan enn meiri samdráttur en við horfumst nú í augu við.

Það er augljóst að það er tvennt sem veldur því að Seðlabanki Íslands getur ekki lækkað stýrivextina eins og hann ætti að gera. Annars vegar það að enn liggur ekki fyrir raunhæf áætlun í ríkisfjármálum. Það er lykilatriði í þessu máli og jafnframt hafa ríkisstjórninni verið mislagðar hendur í því að koma saman bankakerfinu.

Sænski ráðgjafinn Mats Josefsson lýsti yfir gríðarlegri óánægju með hversu hægt gengi að endurreisa bankakerfið og hótaði að hætta. Í Fréttablaðinu í dag kom fram sú skoðun hjá Þorvaldi Gylfasyni, prófessor í hagfræði, að það væri alvarlegt hversu hægt gengi hjá ríkisstjórninni að leggja fram raunhæfar úrbætur í ríkisfjármálum. Forsvarsmenn atvinnulífsins hafa lýst því yfir að það væru forsendur kjarasamninga í landinu að vextir Seðlabankans lækkuðu þannig að hægt væri að lifa við þá. Bæði Gylfi Arnbjörnsson og líka forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins, eins og Vilhjálmur Egilsson, hafa sagt að það gangi ekki fyrir þjóðina og fyrir hagkerfið að hafa þetta háa vaxtastig. Ég vil því spyrja hv. þingmann, formann þingflokks Samfylkingarinnar: Hvernig stendur á því að ríkisstjórnin klárar ekki þau mál sem svo augljóslega verður að klára til að hægt sé að lækka vextina?