137. löggjafarþing — 14. fundur,  4. júní 2009.

störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Það stóð til í upphafi þessarar umræðu að ég blandaði mér í umræðu um ORF Líftækni og leyfisveitingar vegna erfðabreyttra lífvera eða ræktunar erfðabreytts byggs en því hefur verið svarað eins og vera ber.

En ég get ekki á mér setið að bregðast við orðum hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar um aðgerðaleysi og vanhæfa ríkisstjórn. Gerð hafa verið að umtalsefni áður undir þessum lið hér í dag fyrri störf tiltekinna þingmanna úti í samfélaginu og hv. þingmaður var einu sinni efnahagsráðgjafi þáverandi forsætisráðherra Íslands, Geirs H. Haarde. Í ráðuneyti Geirs H. Haarde sat m.a. sú sem hér stendur og ég ráðlegg hv. þingmönnum að fara ekki svo langt í yfirlýsingum sínum og klippa sig ekki með þeim hætti frá fortíðinni að þeir verði gjörsamlega ómerkir orða sinna í þessum ræðustóli.