137. löggjafarþing — 14. fundur,  4. júní 2009.

náttúruverndaráætlun 2009–2013.

52. mál
[11:33]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009–2013, þar sem lagt er til að 13 svæði verði friðlýst á þessu tímabili.

Þingsályktunartillagan hefur verið unnin á grundvelli 65. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, sem kveður á um að umhverfisráðherra skuli láta vinna náttúruverndaráætlun fyrir landið allt á fimm ára fresti og leggja hana fyrir Alþingi.

Þetta er önnur náttúruverndaráætlunin sem lögð er fram til umræðu á Alþingi, en gildistími fyrstu náttúruverndaráætlunar var 2004–2008. Skipulagt náttúruverndarstarf á Íslandi nær auðvitað mun lengra aftur í tímann. Fyrstu náttúruverndarlögin voru samþykkt 1956 og mörg svæði og náttúrufyrirbæri hafa verið friðlýst síðan þá á grundvelli laga um náttúruvernd og sérlaga. Með náttúruverndaráætlun er stefnt skipulega að því að setja upp net friðlýstra svæða sem tryggi verndun lífríkis, jarðminja, landslags og líffræðilegrar fjölbreytni sem þarfnast verndar, byggt á vísindalegum rannsóknum og kortlagningu á náttúru Íslands, greiningu á alþjóðlegum skuldbindingum og faglegu mati á verndargildi. Nú eru um 100 friðlýst svæði á landinu sem ná yfir nær 20% af flatarmáli þess.

Nokkur nýmæli eru í náttúruverndaráætlun 2009–2013 og má þar nefna að í fyrsta sinn er stefnt að því að friðlýsa vistgerðir annars vegar og hryggleysingja og búsvæði þeirra hins vegar. Flest svæðanna á áætluninni eru hins vegar friðlýst í því skyni að vernda sjaldgæfar plöntur og vaxtarstaði þeirra. Einnig er lagt til að friðlýstar verði 160 tegundir mosa, fléttna og háplantna sem er mesta friðun tegunda sem ráðist hefur verið í. Gerð er tillaga um eitt svæði vegna jarðfræðiminja en það er Langisjór og nágrenni. Það svæði verði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði, en hið sama gildir um fjögur önnur svæði á áætluninni. Vatnajökulsþjóðgarður er nú þegar orðinn stærsti þjóðgarður Evrópu og stærsta verkefni í náttúruvernd sem Íslendingar hafa ráðist í.

Ég vil nú fara yfir svæðin 13 sem lagt er til að friðlýsa á tímabilinu 2009–2013 og gera stuttlega grein fyrir forsendum að baki tillögunum að vernd þeirra.

Fyrst vil ég gera grein fyrir sex svæðum sem lagt er til að verði friðlýst til að styrkja friðun sjaldgæfra plöntutegunda:

Snæfjallaströnd – Kaldalón við norðanvert Ísafjarðardjúp er mikilvægt svæði fyrir margar sjaldgæfar háplöntur.

Gerpissvæðið, sem kennt er við austasta tanga Íslands, er þekkt fyrir sérstætt gróðurfar, en á svæðinu finnast allnokkrar sjaldgæfar háplöntutegundir. Svæðið er vinsælt til útivistar.

Tvö skógarsvæði á Fljótsdalshéraði eru á náttúruverndaráætlun, Eyjólfsstaðaskógur og Egilsstaðaskógur. Þau eru merkileg m.a. fyrir fjölda sjaldgæfra fléttna sem þrífast sem ásætur á birki, en að auki vaxa þar sjaldgæfar tegundir háplantna.

Tvö svæðanna, skóglendi við Hoffell og Steinadal í Suðursveit, er lagt til að friðlýsa sem hluta af stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs, en þau eru fyrst og fremst verndarþurfi vegna gróðurfars og sjaldgæfra plantna.

Þrjú svæði á hálendi Íslands verða friðlýst einkum vegna sérstæðra vistgerða, ef áætlunin nær fram að ganga. Hvað eru vistgerðir? kann nú einhver að spyrja. Vistgerðir eru landeiningar sem búa yfir ákveðnum eiginleikum hvað varðar loftslag, berggrunn, jarðveg, gróður og dýralíf og henta mjög vel til að skilgreina svæði út frá náttúrufræðilegum forsendum og til að meta verndargildi þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er til að vistgerðir verði friðlýstar á Íslandi, en þau svæði sem vernda á út frá þessum forsendur eru:

Hluti Skaftáreldahrauns, með því að færa út mörk Vatnajökulsþjóðgarðs, sem áður tilheyrði friðlandi umhverfis Lakagíga. Með því á að vernda svokallaða breiskjuhraunavist sem þekkist líklega ekki utan Íslands en við Íslendingar þekkjum sem samfelldar mosaþembur á hraunbreiðum ásamt því lífríki sem þær hýsa.

Lagt er til að Orravatnsrústir verði friðaðar en þar er að finna rústamýravist og sérstæðasta freðmýrasvæði landsins.

Í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er hér lagt til að friðlandið í Þjórsárverum verði stækkað og friðun þess lokið sem fyrst. Lagt er til að mörk friðlandsins í Þjórsárverum verði færð út þannig að það nái yfir allt votlendi veranna. Þar með mundu bætast við nokkur rústamýrasvæði sem eru utan friðlandsins. Jafnframt yrðu friðlýsingarskilmálar þar styrktir og bann lagt við röskun innan svæðisins. Þá er æskilegt að styrkja friðun Guðlaugstungna í sama skyni.

Að auki er lagt til að ráðist verði í almenna friðlýsingu þessara tveggja vistgerða, breiskjuhraunavistar og rústamýravistar, með vísun til 53. gr. náttúruverndarlaga.

Nú er í fyrsta sinn lagt til að dýrategundir verði friðaðar samkvæmt lögum um náttúruvernd, en þar er um þrjár tegundir sjaldgæfra hryggleysingja að ræða og búsvæði þeirra.

Friðlýst verði búsvæði tjarnaklukku í tjörnum á Innrihálsi í Berufirði, búsvæði bjöllutegundarinnar tröllasmiðs í Undirhlíðum í Nesjum og búsvæði snigilsins brekkubobba í hvannstóði undir Reynisfjalli.

Aðeins eitt svæði er í áætluninni þar sem áherslan er fyrst og fremst á jarðfræði. Langisjór og nánasta umhverfi hans verða friðlýst samkvæmt þingsályktunartillögunni og svæðið fellt inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Á svæðinu gefur að finna, eins og víðar í þjóðgarðinum, einstakt samspil jarðelds og jökla við landmótun. Eldgjársprungan liggur um svæðið austanvert, en hún er lengsta gígaröð sem gosið hefur á landinu á sögulegum tíma. Langisjór sjálfur er þekktur fyrir náttúrufegurð.

Hæstv. forseti. Þetta eru þau 13 svæði sem lagt er til að verði friðlýst á næstu fimm árum á grundvelli náttúruverndaráætlunar 2009–2013. Við val á þessum svæðum voru hafðar til grundvallar tillögur nefndar sem skipuð var fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands og Umhverfisstofnunar. Einnig var haft samband við sveitarstjórnir á viðkomandi svæðum og landeigendur til að kanna vilja þeirra, án skuldbindinga af þeirra hálfu. Framkvæmd friðlýsingar er eins og kunnugt er, og mikilvægt að hafa í huga, ferli sem unnið er í samvinnu við sveitarstjórnir og landeigendur og þá verður kveðið nánar á um mörk svæðanna, kvaðir sem fylgja friðlýsingunni og hvernig friðlýsingin fellur sem best að annarri landnotkun. Samkvæmt náttúruverndarlögum skiptast friðlýst svæði í fimm flokka eftir eðli, tilgangi og markmiði verndunar. Það eru: þjóðgarðar, friðlönd, náttúruvætti, tegundir lífvera og búsvæði þeirra, vistgerðir og vistkerfi og fólkvangar. Í flestum tilvikum er ljóst hvaða flokka svæðin 13 falla í, svo sem þau sem felld verða inn í Vatnajökulsþjóðgarð, en í einhverjum tilvikum getur verið þar um ákvörðun að ræða í friðlýsingarferlinu. Umhverfisstofnun hefur umsjón með framkvæmd friðlýsingar í samvinnu við viðkomandi sveitarstjórnir og landeigendur.

Ég vil nú víkja nokkrum orðum að framkvæmd náttúruverndaráætlunar og ætla fyrst að fjalla um framkvæmd þeirrar áætlunar sem rann sitt skeið á enda í lok síðasta árs og síðan hvernig náttúruverndaráætlun tengist öðru skyldu starfi, svo sem rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða.

Eins og fram kom í byrjun er þessi áætlun önnur í röðinni, en fyrsta náttúruverndaráætlunin gilti á tímabilinu 2004–2008. Á tímabilinu bar hæst stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem er ekki einungis stærsti þjóðgarður Evrópu, heldur án efa einn sá merkasti þar sem hvergi í álfunni er hægt að sjá landmótunaröfl elds og ísa að störfum eins greinilega. Uppbygging þjóðgarðsins hefur hafist með myndarlegum hætti og ég tel víst að hann verði hornsteinn í ferðaþjónustu og ímynd landsins í framtíðinni og vegur hans og hróður muni vaxa enn.

Hvað önnur svæði varðar er staðan ekki eins góð. Aðeins hefur verið lokið við friðlýsingu tveggja svæða, Guðlaugstungna–Álfgeirstungna og Teigsskógs í Skorradal. Mikil vinna hefur verið unnin við flest svæðanna 14 og er stefnt að því ljúka friðlýsingu sem flestra þeirra auk hinna nýju svæða sem hér hafa verið kynnt. Ljóst er að nokkur andstaða er meðal viðkomandi landeigenda við friðlýsingu sumra svæða og einnig má spyrja hvort friðlýsingarferlið sé of þungt í vöfum eða hvort áform um friðlýsingu kalli fram neikvæð viðbrögð, e.t.v. að óþörfu. Rétt er að nefna að nokkur svæði utan náttúruverndaráætlunar hafa verið friðlýst á undanförnum árum, oft að frumkvæði sveitarfélaga sem sýnir að víða er skilningur og metnaður á sviði náttúruverndar.

Ég hyggst, sem nýr umhverfisráðherra, ræða væntanlegar friðlýsingar við sveitarstjórnir og heimamenn og skoða hvað hægt sé að gera til að þær gangi hraðar og auðveldar fyrir sig. Í ljósi reynslunnar tel ég líka rétt að umhverfisráðherra geri Alþingi grein fyrir framkvæmd náttúruverndaráætlunar reglulega og oftar en á fimm ára fresti.

Ég vil ekki útiloka að það verði hægt að friðlýsa á tímabilinu fleiri svæði en er að finna nú í náttúruverndaráætlun. Það kann að ráðast af frumkvæði sveitarstjórna í einhverjum tilvikum, en einnig af öðru starfi sem unnið er undir merkjum náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar. Nú er unnið að gerð rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða þar sem raða á mögulegum virkjunarkostum eftir hagkvæmni þeirra og verndargildi viðkomandi svæða. Þegar þeirri vinnu lýkur gefst tækifæri til þess að skoða mögulega friðlýsingu þeirra svæða sem metin eru verðmætust frá náttúruverndarsjónarmiðum. Þar á m.a. að meta verndargildi háhitasvæða, en ljóst er að mörg verðmætustu náttúruverndarsvæði landsins eru háhitasvæði. Við verðum að velja hver þeirra við viljum nýta til frekari raforkuframleiðslu og hver við viljum nýta sem náttúrugersemar með náttúruvernd. Samhliða framkvæmd náttúruverndaráætlunar 2009–2013 þarf að vinna að undirbúningi þriðju áætlunarinnar og styrkja vísindalegan grunn náttúruverndar með rannsóknum og mati á verndargildi.

Hæstv. forseti. Metinn hefur verið lauslega kostnaður við framkvæmd náttúruverndaráætlunar fyrir þau 13 svæði sem áætlunin tekur til. Heildarkostnaður við náttúruverndaráætlunina á tímabilinu er áætlaður um 78,6 millj. kr. á verðlagi ársins 2009. Þar af er stofnkostnaður 59,2 millj. kr. en heildarrekstrarkostnaður er 19,4 millj. kr. Eykst hann á tímabilinu eftir því sem friðlýsingum vindur fram. Þannig verður árlegur rekstrarkostnaður alls 7,8 millj. kr. á ári þegar friðlýsingum er að fullu lokið á árinu 2013 samkvæmt áætluninni. Sá fyrirvari er gerður á mati á kostnaði náttúruverndaráætlunar 2009–2013 að í kjölfar friðlýsingar má reikna með að frekari uppbyggingar sé þörf á einhverjum þessara svæða með tilliti til aðgengis, þjónustu og frekari landvörslu. Í þeim tilfellum munu verða lagðar fram fjárlagabeiðnir þar að lútandi.

Ég vil ítreka að þetta mat á kostnaði er miðað við að ná fram lágmarkskröfum friðunar en ekki að byggja upp viðkomandi svæði fyrir fræðslu og vaxandi útivist. Ég tel að fé til náttúruverndar sé vel varið og að það muni eiga við í vaxandi mæli á komandi árum. Náttúra Íslands er sérstök og yfirgnæfandi fjöldi erlendra ferðamanna sem hingað koma nefnir náttúruna sem helstu ástæðu heimsóknarinnar. Náttúran er samofin þjóðarvitundinni og vernd hennar er eins mikilvæg og verndun tungunnar og menningararfsins. Ég tel rétt að skoða hvort við getum aukið framlög til náttúruverndar með mörkuðum tekjustofnum, svo sem af þeirri starfsemi sem helst nýtir náttúruverndarsvæðin eins og ferðaþjónustu og orkuvinnslu.

Ég tel að þar sé einfaldlega um eðlilegan viðhaldskostnað að ræða, að náttúruvernd sé grundvöllur sjálfbærrar nýtingar þeirrar auðlindar sem felst í fegurð landsins, lífríki og sérstæðum náttúrufyrirbærum. Uppbygging landvörslu, göngustíga og fræðslu á friðlýstum svæðum gerir okkur kleift að byggja upp ferðaþjónustu samhliða verndun náttúrunnar. Sums staðar er friðlýsing einföld aðgerð þar sem sérstætt lífríki eða jarðmyndanir fá lagalega vernd með auglýsingu án mikilla kvaða eða framkvæmda á svæðinu. Á öðrum stöðum er æskilegt og jafnvel nauðsynlegt að ráðast í stígagerð og aðrar framkvæmdir og víða eru tækifæri til að byggja upp útivistarsvæði á friðlýstum svæðum í formi fólkvanga og jafnvel þjóðgarða.

Verndun náttúru landsins er langtímaviðfangsefni, sem er byggt á þekkingu á náttúrunni og virðingu fyrir henni og framkvæmt í samvinnu stjórnvalda, landeigenda og alls almennings. Náttúruverndaráætlun er ekki eini þátturinn í því viðfangsefni en gegnir þar lykilhlutverki. Sú áætlun sem hér er lögð fram er byggð á vísindalegri þekkingu og faglegu mati á verndargildi náttúru landsins og ég vonast til að umhverfisráðuneytið og stofnanir þess geti hrundið henni í framkvæmd í góðri samvinnu við sveitarstjórnir og heimamenn á hverjum stað og með reglulegri upplýsingagjöf til Alþingis sem ég vona að samþykki þessa tillögu.

Hæstv. forseti. Ég hef farið yfir meginþætti tillögu til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009–2013 og legg til að þingsályktunartillögunni verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umr. og til umfjöllunar í hv. umhverfisnefnd.