náttúruverndaráætlun 2009--2013.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra svarið. Það er mjög brýnt fyrir einmitt þennan málaflokk, fyrir friðlýsingarnar, og til að hægt sé að mæta stofnkostnaði og uppbyggingu á viðkvæmum svæðum, sem þá oft eru ferðamannasvæði, að við öflum sértækra tekna sem fari beint í þennan málaflokk. Það hefur staðið friðlýsingum og þjóðgörðum á Íslandi fyrir þrifum árum og áratugum saman að ríkisvaldið hefur ekki sett til þeirrar starfsemi og atvinnuuppbyggingar þá fjármuni sem hún á skilið og þörf er á miðað við þau verðmæti sem felast í íslenskri náttúru.
Ég kem hingað upp til að hvetja hæstv. ráðherra áfram í þessu efni. Ég mun sem formaður í umhverfisnefnd beita mér líka fyrir umfjöllun um þessi mál þar og við verðum að gera okkur grein fyrir því að þetta fæst ekki ókeypis og veita þarf fé til málaflokksins úr ríkissjóði.